Nýr byggingarfulltrúi Reykjavíkur
24.08.2011
Upplestur á frétt 
Nýr byggingarfulltrúi Reykjavíkur tók til starfa á Skipulags- og byggingarsviði þann 15. ágúst sl. þegar Björn Stefán Hallsson arkitekt tók við starfinu af Magnúsi Sædal Svavarssyni. Björn Stefán lauk arkitektanámi frá Leicester Polytechnic School of Arcitecture í Englandi árið 1978 og hefur langa reynslu af stjórnun viðamikilla framkvæmda. Hann stofnaði arkitektastofu með öðrum í Chicago fyrir tveimur áratugum og hefur starfað um allan heim á hennar vegum. Björn hefur hlotið viðurkenningar fyrir verk sín og haldið fyrirlestra og sýningar víða um heim.