Almennur kynningarfundur 31. ágúst um Nýjan Landspítala
30.08.2011
Upplestur á frétt 
Í kjölfar þess að Skipulagsráð Reykjavíkur hefur heimilað almenna kynningu á drögum að deiliskipulagi á lóð Landspítala við Hringbraut efnir NLSH til opins kynningarfundar um verkefnið með Landspítala og Háskóla Íslands næstkomandi miðvikudag, 31. ágúst, kl. 17:30 í stofu 105 á Háskólatorgi.
Á fundinum munu forstjóri Landspítala, rektor Háskóla Íslands og fulltrúar hönnunarhópsins SPITAL kynna verkefnið og drög að deiliskipulagi á lóð Landspítala. Veggspjöld með uppdráttum og þrívíddarmyndum verða einnig til sýnis á fundinum og sérfræðingar á vegum verkefnisstjórnar NLSH verða á vettvangi til að svara spurningum gesta.
Í framhaldi af Háskólatorgsfundinum fara fram kynningardagar 1.-6. september í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg, í húsnæði rekstrarsviðs Landspítala og verkefnisstjórnar NLSH, þar sem gestir og gangandi geta skoðað kynningarefni og rætt við starfsfólk verkefnisstjórnar. Kynningarefnið verður einnig aðgengilegt frá 1. september nk. í þjónustuveri Reykjavíkurborgar á Höfðatorgi, á
vefsíðu Reykjavíkurborgar og á
verkefnavef NLSH.
Ábendingar og athugasemdir vegna deiliskipulagsdraganna skal senda á netfangið
skipulag@reykjavik.is fyrir 1. október 2011.