Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Kynningargögn vegna nýs Landspítala

01.09.2011

Upplestur á frétt 

Í kjölfar þess að Skipulagsráð Reykjavíkur heimilaði almenna kynningu á drögum að deiliskipulagi á lóð Landspítala við Hringbraut efndi NLSH til opins kynningarfundar 31. ágúst sl. Hátt í 200 manns mættu á kynningarfundinn en hann markaði upphaf forkynningar á deiliskipulagstillögunni. Á fundinum kynntu forstjóri Landspítala, rektor Háskóla Íslands og fulltrúar hönnunarhópsins SPITAL verkefnið og drög að deiliskipulagi á lóð Landspítala. Veggspjöld með uppdráttum og þrívíddarmyndum voru einnig til sýnis á fundinum sem má skoða hér að neðan.

Skoða kynningargögn (PDF) 
Skoða kynningarmyndband  
Önnur áhugaverð gögn má finna hér

Í framhaldi af fundinum í gær fara nú fram kynningardagar 1.-9. september í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Kynningarefnið er einnig aðgengilegt frá og með deginum í dag í þjónustuveri Reykjavíkurborgar á Höfðatorgi, sem og hér og á verkefnavef NLSH. Ábendingar og athugasemdir vegna deiliskipulagsdraganna skal senda á netfangið skipulag@reykjavik.is fyrir 1. október 2011.