Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Ingólfstorg - Kvosin, hugmyndasamkeppni

19.10.2011

Upplestur á frétt 

Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar í samvinnu við Arkitektafélag Íslands efnir til tveggja þrepa samkeppni um skipulag á Ingólfstorgi og frumhönnun hótels á keppnisreit.

Fyrra þrepið er hugmyndasamkeppni um endurskoðun á hönnun og skipulagi svæðis sem afmarkast af Aðalstræti, Hafnarstræti, Veltusundi, Vallarstræti Thorvaldsensstræti og Kirkjustræti. Í þessum hluta samkeppninnar er lögð áhersla á skipulag almenningsrýma á svæðinu og frumhönnun hótels. Huga skal að heildarmynd svæðisins og tengingum við aðliggjandi almenningsrými með notagildi og umhverfisgæði að leiðarljósi.

Seinna þrepið er framkvæmdasamkeppni. Allt að 5 tillögur verða valdar úr fyrra þrepi til að forhanna hótel og útfæra nánar almenningsrými.

Skilafrestur tillagna er 18. janúar 2012. Nánari upplýsingar er að finna í keppnislýsingu sem er aðgengileg á vefsíðunni www.hugmyndasamkeppni.is og á vefsíðum skipulags- og byggingarsviðs, www.skipbygg.is og Arkitektafélags Íslands www.ai.is. Ítargögn eru fáanleg þeim sem skrá sig til þáttöku gegn greiðslu þátttökugjalds.