Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Nýtt kynningarrit um skipulagsmál komið út

15.11.2011

Upplestur á frétt 

Fyrsta tölublað af Borgarsýn er komið út, en það er Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar sem gefur kynningarritið út. „Tilgangur með útgáfunni er fyrst og fremst að upplýsa borgarbúa um þau verkefni sem efst eru á baugi skipulagsmála hverju sinni. Borgarumhverfið er í stöðugri mótun en þróun þess og áherslur í skipulagsmálum eiga brýnt erindi við alla borgarbúa,“ segir í formála skipulagsstjóra.

Í Borgarsýn er víða borið niður. Sagt er frá langtímastefnumótun sem birtast mun í endurskoðuðu aðalskipulagi á næsta ári; fjallað er um uppákomutengd verkefni eins og sumarverkefnið torg í biðstöðu. Væntanleg uppbygging á lóð Landsspítalans við Hringbraut er til umfjöllunar, en þar er um að ræða umfangsmestu uppbyggingu sem sjá má fyrir sér á komandi misserum í borginni. „Tillaga að uppbyggingunni er enn í vinnslu og samráðsferlið rétt hafið og því fjölmörg tækifæri til að hafa áhrif á mótun tillögunnar áður en yfir lýkur,“ segir Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri í formála.

Kynningarritið Borgarsýn er gefið út í 1.000 eintökum, en einnig aðgengilegt á vefnum.  Skoða Borgarsýn á vefnum. Ritstjórar Borgarsýnar eru Björn Ingi Edvardsson og Valný Aðalsteinsdóttir.

Fyrirhugað er að gefa út Borgarsýn út fjórum sinnum á ári. Í næstu Borgarsýn verður fjallað um gerð skipulags í grónum hverfum borgarinnar, en hverfisskipulag er að mati Ólafar lykillinn að stefnumótun um sjálfbærari hverfi. Með því næst betri heildarsýn og nánara samhengi milli stefnumótunar og framkvæmda. Þar með sé líklegra að megin markmið skipulagsyfirvalda um umhverfisvæna borg, þar sem lífsgæði eru í fyrirrúmi, nái fram að ganga.

 Skoða Borgarsýn 1. tbl. 2011