Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Ráðgjafar til starfa við skipulagsverkefni

17.09.2003

Upplestur á frétt 

Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir umsóknum arkitekta/skipulagsfræðinga er réttindi hafa til skipulagsgerðar sbr. gr. 2.7. í skipulagsreglugerð nr. 400/1998 til að vinna að fjölbreyttum skipulagsverkefnum á komandi mánuðum.

Þeir aðilar sem fullnægja tilsettum skilyrðum verða settir á lista sem uppfærður er reglulega, en einstaklingar/fyrirtæki geta óskað eftir því að verða settir á listann hvenær sem er.

Þegar um fyrirspurn er að ræða verða að jafnaði valdir 3-5 aðilar sem gefinn er kostur á að vinna að tillögu eða bjóða í verkefni. Listinn verður einnig notaður til að velja ráðgjafa samkvæmt beinu vali þegar það á við sbr. innkaupareglur Reykjavíkur.

Við val á fyrirtækjum hverju sinni verður leitast við að velja þá aðila sem unnið hafa vandaða vinnu og sinnt hliðstæðum verkefnum. Jafnframt verður leitast við að velja fyrirtæki sem ekki hefur unnið áður fyrir Reykjavíkurborg og/eða nýtt fyrirtæki sem réttindi hefur til skipulagsgerðar.

Niðurstaða fyrirspurnar er síðan byggð á mati sem nánar er greint frá í verklýsingu eða fyrirspurn hverju sinni, þar sem hæfni, menntun og reynsla verður lögð til grundvallar auk hönnunarkostnaðar bjóðenda.

Umsóknareyðublöð ásamt nánari upplýsingum má nálgast hér:

Umsóknareyðublað, SKB108/3

Einnig má nálgast umsóknareyðublöð á sama stað að Fríkirkjuvegi 3.

Umsóknum skal skilað til Innkaupastofnunar eigi síðar en 30. september 2003.