11.12.2007
Dagdeild aldraðra Þorraseli, Þorragötu 3
Þorragata 3 - Þorrasel dagdeild aldraðra
Sími: 561 2828
Fax: 561 3028
Beiðni um dagvist
Sótt er um dagvist hjá deildarstjóra dagdeildar í síma 561 2828. Gert er ráð fyrir að umsækjendur komi og skoði deildina og er þá gengið frá skriflegri umsókn. Boðið er upp á dvöl frá tveimur og upp í fimm daga.
Starfsemin
Gert er ráð fyrir 40 einstaklingum á dag. Daglegt starf felur m.a. í sér samverustundir, starf á vinnustofu, útiveru, léttar leikfimisæfingar og ýmislegt fleira. Greiða þarf sérstaklega fyrir efni á vinnustofu.
Þjónusta
Akstur er til og frá dagdeild. Bílstjórar aðstoða fólk frá og að heimili ef með þarf. Dvalargestir eru sóttir milli kl. 8:00 og 9:30 að morgni. Tímasetning fer eftir búsetu í borginni. Mikilvægt er að fólk sé tilbúið þegar að bíll kemur. Heimferð er kl. 15:15 til 15:45.
Þeir sem þess þurfa geta fengið aðstoð við bað og lyfjagjöf.
Í boði er morgunmatur, hádegismatur og miðdegiskaffi áður en lagt er af stað heim. Hægt er að fá fótsnyrtingu og klippingu á staðnum, en aðra hársnyrtingu í félags og þjónustumiðstöðinni á Aflagranda 40. Fyrir þessa þjónustu þarf að greiða sérstaklega. Starfsfólk aðstoðar við bókanir.
Hægt er að fá matvörur frá versluninni Skerjaveri. Komið er með vörurnar í Þorrasel. Starfsfólk aðstoðar við pantanir.
Þjónustugjöld
Dvalagestir greiða 700 kr. fyrir hvern dvalardag.
Fjarvistir
Tilkynna þarf fjarvistir til dagdeildar í síma: 561 2828. Einnig er hægt að hringja í bílstjóra í síma: 892 1985. Ekki þarf að greiða þjónustugjald ef fjarvistir eru tilkynntar. Ef fjarvistir eru tilkynntar of seint og bílstjóri mætir að heimili þarf að greiða þjónustugjald. Dvalargestir halda plássi þótt þeir mæti ekki tímabundið s.s. vegna orlofs, veikinda eða innlagna á sjúkrahús. Nauðsynlegt er að láta deildarstjóra vita um lengir fjarvistir og með fyrirvara ef hægt er t.d. við hvíldarinnlagnir.