Barnamenningarhátíð í Reykjavík 19.-25. apríl 2010
22.01.2010
Efnt verður til Barnamenningarhátíðar í Reykjavík á vordögum. Hátíðin fer fram víðsvegar um borgina; ofan í sundlaugum, uppi í Esjuhlíðum, á skólalóðum, á öldum ljósvakans og á götum úti.
Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hún getur inniborið matarmenningu og málþing, íþróttir og inniveru, leiklist og listdans og í rauninni alla fleti menningar, bara að það sé skýr tenging við börn og barnamenningu.
Hátíðin er hugsuð fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri.
Barnamenningarhátíð hefst mánudaginn 19. apríl og lýkur sunnudaginn 25. apríl. Inn í þessa viku kemur sumardagurinn fyrsti, fimmtudaginn 22. apríl.
Þema hátíðarinnar að þessu sinni verður forvitni.
Æskilegt er að stærstur hluti hátíðarinnar verði í anda þátttökuhátíða á borð við Menningarnótt og Vetrarhátíð þar sem áhersla er lögð á aðgengi fyrir alla með ókeypis aðgangi að viðburðum. Ef nauðsynlegt er að krefjast aðgangseyris á einstaka viðburði þarf að stilla honum í hóf.
Höfuðborgarstofa vinnur ásamt verkefnisstjórn hátíðarinnar að samræmingu viðburða, kynningarstarfi og fleiru en viðburðirnir sem mynda dagskrá hátíðarinnar eru skapaðir og framkvæmdir af hugmyndaríku fólki út um alla borg.
Höfuðborgarstofa hvetur alla sem áhuga hafa á því að efla barnamenningu, hverju nafni sem hún nefnist, að leggja lóð á vogarskálarnar. Þessi hátíð er ekki byggð upp á stórum viðburðum heldur mörgum smáum. Hún rúmar allar listgreinar og allt sem að börnum snýr.
Stofnaður hefur verið Facebook-hópur sem heitir Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010. Þar er opinn umræðuvettvangur og skemmtilegum hugmyndum kastað á milli. Skráðu þig endilega í hópinn.