Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

4. bekkingar opna Barnamenningarhátíð

05.03.2010

Barnamenningarhátíð hefst í Reykjavík 19. apríl með mikilli skrúðgöngu í miðborginni. Öllum grunnskólanemum í 4. bekk hefur verið boðið að taka þátt í opnunaratriði hátíðarinnar. Grunnskólar eru beðnir um að tilkynna þátttöku fyrir 8. mars hjá Höfuðborgarstofu sem verkstýrir hátíðinni. Tengiliður og skráning hjá Heiðrúnu Hákonardóttur.  

Þeim skólum sem taka þátt í hátíðinni verður úthlutað litaþema í skrúðgöngunni, en í henni verða einnig ýmsar uppákomur með aðild leikhópa, tónlistarskóla og annarra. Opnunarhátíðan þann 19. apríl hefst kl. 11. 00 með göngunni miklu en lýkur í Barnamenningarhúsi að Fríkirkjuvegi 11. Öllum þátttakendum verður boðið upp á rútufar frá skóla og niður í bæ og aftur til baka.