Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Hvergiland – sýningarspjall Katrínar Elvarsdóttur

05.03.2010

Nýlega var opnuð í D-sal Hafnarhússins ljósmyndasýning Katrínar Elvarsdóttur, Hvergiland en af því tilefni spjallar Katrín um sýninguna sunnudaginn 7. mars kl. 15.

Sýningin er 16. verkefnið sem er unnið fyrir D-salinn en sýningaröðin hófst í febrúar 2007. Í D-salnum er lögð áhersla á að kynna ný verk eftir listamenn af yngri kynslóðinni sem ekki hafa sýnt í safninu áður.

D-salar verkefnið er tilnefnt til Menningarverðlauna DV 2009.

HVERGILAND
Í texta sem Sigrún Sigurðardóttir hefur ritað um sýningu Katrínar segir m.a.: „Katrín Elvarsdóttir hefur á undanförnum árum leitt áhorfendur inn í heim þar sem skáldskapur og veruleiki renna saman. Hún beitir ljósmyndinni til að skapa ímyndaðan heim sem sprottinn er úr veruleikanum sjálfum og dregur þannig fram framandleika umhverfis sem alla jafna er álitið hversdagslegt.”

Katrín Elvarsdóttir lauk B.F.A. gráðu frá Art Institute of Boston árið 1993 og hefur síðan þá sýnt víða, bæði í Bandaríkjunum, Evrópu og á Íslandi.

Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Meira um sýninguna hér.