Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Könnun á hjólaleiðum í Reykjavík

04.05.2011

Upplestur á frétt 

Reykjavíkurborg stendur nú fyrir könnun til að kortleggja hjólaleiðir í borginni. Fylla þarf út ákveðnar upplýsingar í upphafi könnunar og því næst má teikna leiðir inn á kort af borginni sem birtist á skjánum. Jafnframt er hægt að koma með ábendingar um úrbætur og mæla vegalendir, fólk getur bent á vástaði, t.d. hvar vanti göngu- og hjólreiðastíga, hvar bifreiðar fari of hratt og skrifað aðrar athugasemdir. Einnig er hægt að sækja hjólaferil í GPX skrá fyrir GPS tæki. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningatexta sem birtist vinstra megin á síðunni til þess að klára könnunina.

Eva Einarsdóttir, formaður Íþrótta- og tómstundráðs Reykjavíkur, sagði frá nýja vefnum á opnunarhátíð Hjólað í vinnuna í morgun. Hún sagði að markmiðið væri að sjá hvar fólk vill hjóla, hvar það telur sig öruggt og hvar óöruggt. Þeir sem nota vefinn taka um leið þátt í því að bæta aðgengi og upplifun hjólreiðafólks. Upplýsingarnar nýtast við að skipuleggja Hjólaborgina Reykjavík en vefurinn er byggður á borgarvefsjá

Reykjavíkurborg heldur einnig áfram í sumar að bæta aðstæður fyrir hjólandi og gangandi í borginni til dæmis með því að opna götur alfarið fyrir gangandi og hjólandi í Hafnarstræti, Pósthússtræti og Austurstræti, sagði Eva Einarsdóttir og að tíu kílómetrar af hjólastígum í borginni hafi verið skipulagðir og fyrsti áfangi hjólreiðaáætlunar því litið dagsins ljós. Hraðleið frá Laugardal að Ægisíðu ásamt hjóla- og göngbrú yfir Elliðaárósa hefur til að mynda verið hönnuð.

Tengill

Hjólaleiðir - vefur

Hjólað í vinnuna

Ljósmynd í góðri upplausn/ Arnaldur Halldórsson

Borgarvefsjá