Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fasteignagjöld 2012 í Rafrænni Reykjavík

06.01.2012

Upplestur á frétt 

Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í heimabönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á beingreiðslur hjá öllum
bankastofnunum eða boðgreiðslur af greiðslukortum.

Í Rafrænni Reykjavík geta fasteignaeigendur:

•  skoðað álagningarseðil fasteignagjalda fyrir árið 2012 (eftir 23. jan. nk.) og alla breytingaseðla þar á eftir

•  afpantað álagningarseðla og breytingaseðla með pósti

•  skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda

•  valið einn eða níu gjalddaga fasteignagjalda til 18. janúar 2012

•  gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur

•  óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum þar sem þeir verða, líkt og áður, ekki sendir út til greiðenda, 18-69 ára

Skráðu þig inn í Rafræna Reykjavík.

Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið fasteignagjold@reykjavik.is eða í síma 411 1111.