Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sólin skín á Sunnufold

18.01.2012

Upplestur á frétt 

Nýr sameinaður leikskóli í Foldahverfi hefur fengið nafnið Sunnufold. Leikskólinn tók til starfa síðastliðið sumar, en hann sameinar þrjá leikskóla í Foldahverfi í Grafarvogi; Foldaborg, Foldakot og Funaborg. Efnt var til samkeppni meðal starfsfólks, foreldra og barna um nafn á nýja skólann og bárust á annað hundrað tillögur.

Í umsögn nafnanefndar segir m.a. að allar starfsstöðvar nýja leikskólans standi í sömu hlíð á móti suðri og því fari vel á því að kenna sameinaðan skóla við sunnu. Jafnframt segir í umsögn að Foldahverfið hafi jafnan verið talinn einn sólríkasti staðurinn í borgarlandinu.

Valgerður Anna Þórisdóttir er leikskólastjóri í Sunnufold þar sem eru um 130 börn.