Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sumarfrístund fyrir elstu leikskólabörnin

18.01.2012

Upplestur á frétt 

Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum 18. janúar, að setja á laggir starfshóp sem undirbúa á nýtt þjónustutilboð fyrir elstu leikskólabörnin sumarið áður en þau setjast á skólabekk í grunnskóla. Með svokallaðri sumarfrístund er áformað að bjóða verðandi 1. bekkingum upp á spennandi frístundastarf á skólaskilum, eða í nokkrar vikur að loknu sumarleyfi leikskólanna og fram að skólabyrjun.

Markmiðið er að skapa meiri samfellu milli fyrstu skólastiganna og veita nýjum grunnskólanemendum kost á því að kynnast starfsfólki og starfsemi frístundaheimila áður en formleg skólaganga hefst.