Reykjavíkurborg styrkir blómlegt menningarlíf
18.01.2012
Upplestur á frétt 
Styrkveitingar menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar og úthlutanir til Borgarhátíðarsjóðs og Tónlistarhóps Reykjavíkur 2012 voru tilkynntar í Tjarnarbíói í dag.
Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar, tilkynnti í Tjarnarbíói í dag um styrkveitingar borgarinnar til menningarmála 2012 og úthlutanir úr nýstofnuðum Borgarhátíðasjóði. Framlagið nemur samtals 92,5 milljónum króna.
Borgarhátíðarsjóður er nýmæli sem borgarstjórn samþykkti við gerð fjárhagsáætlunar 2012 og er hluti af styrkveitingum menningar- og ferðamálaráðs. Megintilgangur hans er að styðja við fasta árlega viðburði og örva nýsköpun í hátíðahaldi í Reykjavíkurborg í samræmi við nýja ferðamálastefnu borgarinnar. Sjóðnum er heimilt að gera samstarfssamninga til allt að þriggja ára og hljóta nú átta hátíðir, sem taldar eru skipta verulegu máli í að efla Reykjavík sem eftirsóknarverðan áfangastað ferðamanna, þannig samning.
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fær 10 m.kr. á árinu 2012, Alþjóðleg kvikmyndahátíð - RIFF 9 m.kr , Hönnunarmars 5 m.kr., Jazzhátíð í Reykjavík 3 m.kr. og 2 m.kr. hver fá Blúshátíð í Reykjavík, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Myrkir músikdagar og Food&Fun. Samtals 35 milljónir króna árið 2012. Framlög árin 2013 og 2014 eru með fyrirvara um samþykkt fjárhagsáætlunar hverju sinni. Hátíðirnar Gay Pride og Hestadagar í Reykjavík njóta þegar 3ja ára samnings af styrkveitingum borgarráðs. Reykjavíkurborg hefur styrkt allt að 30 hátíðir árlega og eftir sem áður geta aðrar hátíðir notið almennra styrkja.
Menningar- og ferðamálaráð byggir ákvörðun sína um styrki á niðurstöðu fagnefndar sem tilnefnd var af Bandalagi íslenskra listamanna. Nefndin hafði 204 umsóknir til umfjöllunar og alls var sótt um rúmar 300 m.kr. Ráðið samþykkti að veita 88 styrki - samtals kr. 57,5 m. kr.
Lúðrasveitin Svanur, Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveit Reykjavíkur fengu allar tilnefninguna Tónlistarhópur Reykjavíkur 2012 og hver um sig 700 þús. kr styrk. Lúðrasveitir borgarinnar setja reglulega svip á borgarlífið og sinna mikilvægu tónlistaruppeldi.
Nýlistasafnið hlaut stærsta verkefnastyrkinn 5,7 m.kr. Það sinnir framsæknu sýningarhaldi þar sem áhersla er lögð á að endurspegla breidd og sköpunarkraft íslenskra myndlistarmanna og kynna helstu strauma og stefnur í alþjóðlegri myndlist.
Heimili kvikmyndanna - Bíó Paradís hlaut 5,5 m.kr. Markmið starfseminnar er að efla kvikmyndamenningu og auka til muna fjölbreytni kvikmyndasýninga. Með stofnun Bíó Paradís hefur verið fyllt upp í stórt skarð í kvikmyndamenningu borgarinnar.
Aðrir styrkir
| 2 m. kr. hver: |
Leikhópurinn Vesturport, Kling og Bang og Bandalag sjálfstæðra leikhúsa |
| 1.6 m.kr. |
Stórsveit Reykjavíkur |
| 1.5 m.kr. hver |
Caput, Kammersveit Reykjavíkur og Lókal leiklistarhátíð |
| 1.4 m.kr. |
Reykjavík Dance Festival |
| 1 m.kr. hver: |
Gallerí Ágúst, Kristín Gunnarsdóttir, Möguleikhúsið, Nýsköpunarsjóður tónlistar - Musica Nova og Ung Nordisk Musik |
| 900 þús. kr. |
Myndlistarhátíðin Sequences |
| 800 þús. kr. |
Múlinn jazzklúbbur |
| 700 þús. kr. |
Myndhöggvarafélagið í Reykjavík |
| 600 þús. kr. hver |
Katla Þórarinsdóttir, Reykjavík Fashion Festival |
| 500 þús. kr. hver: |
15:15 tónlistarsyrpa, ArtFart, Herbergi 408, Ég og vinir mínir, Félag kvikmyndargerðarmanna, Lab Loki, List án landamæra, Nýhil v. ljóðahátíðar, Samtök um danshús, Spark Design, Stefán Benedikt Vilhelmsson |
| 450 þús. kr. hver: |
Harpa Arnardóttir, Vox Feminae, Listvinafélag Hallgrímskirkju og Listafélag Langholtskirkju |
| 400 þús. kr. hver: |
Aldrei óstelandi, Brian Douglas Gerke og Steinunn Ketilsdóttir, Camerarctica, Elektra Ensemble, Félag íslenskra organista, Kammermúsíkklúbburinn, Kviss Bamm Búmm, Listasafn ASÍ, Barnabókmenntahátíðin Mýrin, Nordic Affect, Ólafur Sveinn Gíslason, Schola Cantorum, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Soðið svið, Tangófélagið |
| 350 þús. kr. hver: |
Evrópusamband píanókennara, Gísli Galdur Þorgeirsson, Íslensk grafík, Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan, John A. Speight, SuðSuðVestur, Tinna Þorsteinsdóttir |
| 300 þús. kr. hver: |
Halaleikhópurinn, IBBY á Íslandi, Leikfélagið Hugleikur, ReykjavíkurAkademían, Sviðslistafélagið, Söngkvöldafélagið |
| 250 þús. kr. hver: |
Alþýðuóperan, Fatahönnunarfélag Íslands, Ljósvakaljóð, Nýhil v. starfsemi, Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson |
| 200 þús. kr. hver: |
Hugi Guðmundsson, Bjarni Thor Kristinsson, Dansfélagið Krummi, Félag íslenskra tónlistarmanna, Töframáttur tónlistar, Hafsteinn Þórólfsson, Raflistafélag Íslands, Sharon R. Linda Sigurðardóttir, Samband íslenskra myndlistarmanna, Tríó Reykjavíkur, Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, Við og við |
| 150 þús. kr. hver: |
Artíma félag nemenda við listfræði í HÍ, Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr |
| 100 þús. kr. hver: |
Leikfélagið Snúður og Snælda, Söngsveitin Fílharmónía |
| |
|
Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar skipa: Einar Örn Benediktsson formaður, Harpa Elísa Þórsdóttir, Eva Baldursdóttir, Stefán Benediktsson, Magnús Þór Gylfason, Áslaug María Friðriksdóttir og Davíð Stefánsson.
Ráðgefandi faghóp um styrkina skipuðu Sólrún Sumarliðadóttir formaður, Gunnar Hrafnsson, Lárus Ýmir Óskarsson, Randver Þorláksson og Þóra Þórisdóttir.