Læsi – Meira en stafir og staut
18.01.2012
Upplestur á frétt 
Skóla- og frístundasvið efnir til ráðstefnu fyrir leikskólakennara og annað starfsfólk leikskóla laugardaginn 4. febrúar í húsnæði HÍ við Stakkahlíð. Ráðstefnan er haldin í tengslum við Dag leikskólans, en síðastliðin tvö ár hefur Leikskólasvið Reykjavíkurborgar haldið ráðstefnur á þessum tíma. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er læsi í víðum skilningi og tekur mið af 9.1 kafla í aðalnámskrá leikskóla um læsi og samskipti.
Á ráðstefnunni mun Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, flytja fyrirlestur um þann grunn sem er lagður að læsi í leikskólanum og fjalla um hlutverk uppalenda.Hrafnhildur er ásamt fleirum að vinna að stórri rannsókn á þróun þess sem talið er vera undirstaða lestrarnáms í leikskóla.
Aðalheiður Stefánsdóttir og Sigurlaug Einarsdóttir kynna starfsaðferðir í leikskólanum Reynisholti í erindi sem þær kalla Líf og leikni og Ásgerður Guðnadóttir fjallar um samskipti og lýðræði í leik með börnum í leikskólanum Fífuborg. Í báðum leikskólunum er starfið tengt áherslum námskrár á læsi, en læsi í leikskóla felur í sér þekkingu, leikni og hæfni barna til að lesa í umhverfi sitt og tjá upplifun sína, tilfinningar og skoðanir.
Ráðstefnan hefst kl. 9:30 og stendur til kl. 14:00. Skráning er á síðunni www.congress.is
Sjá auglýsingu um ráðstefnuna.