Leikskólar sameinast á táknrænan hátt
18.01.2012
Upplestur á frétt 
Í tilefni af því að sameinaður leikskóli Arnarborgar og Fálkaborgar hefur fengið nafnið Borg var efnt til táknrænnar athafnar á Bakkatúni. Börn, starfsfólk og foreldrar völdu sér fallegan efnisbút eða band sem bundin voru saman í hvorum leikskóla fyrir sig. Síðan var farið með litfagrar efnislengjur út á Bakkatún þar sem leikskólarnir voru bundnir saman á táknrænan hátt. Heiðurinn af því fékk Kristín Sæmundsdóttir verkefnastjóri foreldrasamstarfs á skóla- og frístundasviði.
Börnin í Borg unnu líka á dögunum verðlaun í samkeppni Landverndar og Sorpu um nýtt dagatal. Þau útbjuggu sína eigin veröld úr ýmis konar efniviði eins og notuðum eggjabökkum, salernisrúllum, pappakössum og fleira. Börnin fengu í verðlaun að fara með Sorpu í Gufunes og Álfsnes. Í leikskólanum Borg er allt rusl flokkað og pappír er búinn til úr ýmsu sem til fellur í rekstri skólans.