Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Læsisstefna fyrir leikskóla

19.01.2012

Upplestur á frétt 

Starfshópi verður falið að móta læsisstefnu fyrir leikskóla borgarinnar. Þetta var samþykkt á fundi skóla- og frístundaráðs 18. janúar. Læsisstefna verður mótuð í ljósi aðalnámskrár leikskóla og verða skilgreindar áherslur í málörvun, ritmáli, tjáningu og leik en það eru þættir sem leggja grunn að hæfni barna í lestri síðar meir. Það var þórunn Gyða Björnsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra í ráðinu, sem lagði fram tillöguna sem samþykkt var einróma.