Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Dalskóli fær grenndarsvæði til útikennslu

23.01.2012

Upplestur á frétt 

Í dag var undirritaður samningur milli Dalskóla og umhverfis-og samgöngusviðs um samstarf og nýtingu grenndarsvæðis í skólastarfi. Markmið samstarfsins er að skapa vettvang fyrir umhverfisfræðslu í næsta nágrenni skólans þar sem unnið verður á grundvelli hugmyndafræði um sjálfbæra þróun hvað varðar nýtingu og umgengni. Starfsfólks Dalskóla hefur notið leiðsagnar Náttúruskóla Reykjavíkur um aðferðafræði og möguleika útináms og er undirritun samningsins staðfesting á því góða starfi sem unnið er utandyra á vegum skólans.

Hildur Jóhannesdóttir, skólastjóri Dalskóla, og Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri, undirrituðu samninginn og nemendur skólans sungu nokkur lög ásamt kennurum sínum.

Dalskóli er sameinaður leik- og grunnskóli ásamt frístund og hóf störf haustið 2010. Frá upphafi hefur skólastarf líka farið fram utandyra enda skólinn staðsettur í náttúrufegurð neðst í Úlfarsárdal. Í skólanum er unnið markvisst að því að byggja upp skólasamfélag með samþættingu námsgreina og þemabundnu námi. Skólinn hefur sett sér umhverfisstefnu þar sem lögð er áhersla á að auka þekkingu og virðingu nemenda fyrir umhverfi sínu, skapa jákvætt viðhorf til umhverfisverndar og þroska vitund um lýðræði.