Snjóhreinsun miðar vel
25.01.2012
Upplestur á frétt 
Vegna mikils fannfergis er eðlilega þungfært víða í Reykjavík en unnið er með öllum tiltækum mannskap og tækjum að gera borgina greiðfæra og gengur það nokkuð vel miðað við aðstæður. Unnið er samkvæmt forgangsáætlun jafnframt því sem brugðist er við ábendingum íbúa í síma 411 11 11 eða á netfangið upplysingar@reykjavik.is.
Í dag eru 75 starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum við snjóhreinsun og hálkuvarnir og hafa þeir 47 tæki til afnota. Þessi fjöldi er fyrir utan þá sem eru hjá Vegagerðinni sem er með vakt allan sólarhringinn á stofnbrautum.
Í samræmi við viðbragðáætlanir Reykjavíkurborgar var farið af stað klukkan fjögur í nótt á helstu umferðaræðar og gönguleiðir svo sem að biðstöðvum strætó. Einnig er snjó rutt við skóla, leikskóla, sundlaugar og aðrar stofnanir borgarinnar.
Vel haldið utan um ábendingar íbúa
Tekið er við ábendingum frá íbúum um snjóhreinsun hjá símaveri Reykjavíkurborgar sem kemur þeim með skilvirkum hætti áfram til Framkvæmda- og eignasviðs. Notuð er veflausn sem tengd er verkbeiðnakerfi sviðsins og tryggir það gott utanumhald og yfirsýn. Álagið undanfarnar vikur hefur verið prófraun fyrir kerfið sem hefur staðist hana með sóma. Tekið er við ábendingum í síma 411 11 11 og einnig tölvupósti á netfangið upplysingar@reykjavik.is en netfangið er vaktað af símaverinu.
Íbúar sem hringja sýna ástandinu skilning og vilja aðeins koma upplýsingum áleiðis. Oftast eru það ábendingar um þörf á snjóruðningi í tiltekinni götu en einnig hafa íbúar viljað koma þökkum á framfæri fyrir góð störf snjóruðningsmanna.
Góð samvinna viðbragðsaðila
Fulltrúar Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu hafa farið yfir öryggisþætti með lögreglu, slökkviliði og Neyðarlínunni. Beiðnir frá viðbragðsaðilum fá sérstakan forgang hjá þeim sem stýra snjóhreinsuninni.
Lögreglan hefur hvatt ökumenn til að vera eingöngu á ferð á bílum á góðum vetrardekkjum. Einnig eru ökumenn beðnir um huga að því að bílar séu ekki fyrir snjóruðningstækjum sem víða komast illa að til hreinsunarstarfa. Illa staðsettir bílar hafa tafið hreinsunarstarf og hafa snjóruðningstæki þurft frá að hverfa eða skilja götuna eftir hálfrudda.
Sandur og salt fyrir íbúa
Íbúum í Reykjavík stendur áfram til boða að nálgast sand og salt til að bera á einkalóðir og innkeyrslur. Þeir geta til eigin nota sótt poka á hverfastöðvarnar. Sjá staðsetningu hverfastöðva
Nánari upplýsingar um snjóhreinsun og hálkueyðingu