Hreinsa frá niðurföllum og ryðja húsagötur
27.01.2012
Upplestur á frétt 
Vegna hlýinda sem spáð er um helgina eru starfsmenn Reykjavíkurborgar byrjaðir að hreinsa frá niðurföllum til að forða mögulegu vatnstjóni. Íbúar eru hvattir til að huga að niðurföllum hjá sér. Einnig er unnið af krafti við að ryðja snjó í þeim húsagötum sem ekki tókst að hreinsa í gær þó yfir 100 manns hefðu verið við störf.
Guðni Guðmundsson sem stýrir snjóvaktinni í dag sagði að það hefði verið létt yfir mönnum þegar þeir fóru af stað í nótt. Ekki hafði snjóað um nóttina og voru menn því ekki á byrjunarreit eins og marga undanfarna daga. Yfir 40 tæki voru komin af stað klukkan fjögur í nótt til hreinsunar á götum og göngustígum. Fleiri bættust síðan við undir morgun. Verkið vinnst vel og eftir því sem líða mun á daginn munu akstursleiðir breikka, fleiri húsagötur verða greiðfærar sem og gönguleiðir. Ekki er hægt að forðast snjóruðninga við heimkeyrslur og eru íbúar beðnir um að sýna því skilning.
Íbúar geta sótt sand og salt til að strá á heimkeyrslur og gönguleiðir við heimili. Hverfastöðvarnar við Njarðargötu, Flókagötu, Jafnasel og Stórhöfða verða opnar lengur í dag en venjulega eða til klukkan 18 og einnig á morgun milli kl. 10 – 15.
Símaverið verður einnig opið á morgun, laugardag kl. 10 – 15. Tekið er við ábendingum um snjóhreinsun og þeim komið með skilvirkum hætti áfram til Framkvæmda- og eignasviðs. Notuð er veflausn sem tengd er verkbeiðnakerfi sviðsins og tryggir það gott utanumhald og yfirsýn. Síminn er 411 11 11 og einnig vaktar símaverið netfangið upplysingar@reykjavik.is