Hætta er snjór rennur af þökum
27.01.2012
Upplestur á frétt 
Íbúar hafa haft samband við Reykjavíkurborg og bent á hættu af því þegar að blautur og þungur snjór rennur af þökum húsa. Einnig er hætta af grýlukertum sem hanga í þakbrúnum. Falli snjór og grýlukerti á fólk getur það valdið slysum einkum ef fallhæðin er mikil. Húseigendur eru beðnir um að gæta að þessum málum og gera ráðstafanir til að vara vegfarendur við ef aðstæður kalla á slíkt. Einnig eru húsráðendur hvattir til að huga niðurföllum og gera ráðstafanir til að forða sér frá mögulegu vatnstjóni. Hlýnað hefur í borginni og er spáð áframhaldandi hlýindum um helgina.
Þá er enn og aftur rétt að vekja athygli íbúa á að þeir geta sótt sand og salt til að strá á heimkeyrslur og gönguleiðir við heimili. Hverfastöðvarnar við Njarðargötu, Flókagötu, Jafnasel og Stórhöfða verða opnar lengur í dag en venjulega eða til kl. 18 og einnig á morgun milli kl. 10 – 15.
Símaverið verður einnig opið á morgun, laugardag kl. 10 – 15. Tekið er við ábendingum um snjóhreinsun og þeim komið með skilvirkum hætti áfram til Framkvæmda- og eignasviðs. Notuð er veflausn sem tengd er verkbeiðnakerfi sviðsins og tryggir það gott utanumhald og yfirsýn. Síminn er 411 11 11 og einnig vaktar símaverið netfangið upplysingar@reykjavik.is