Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

68 tillögur bárust í hugmyndasamkeppninni Ingólfstorg-Kvosin

30.01.2012

Upplestur á frétt 

Skilafrestur tillagna í hugmyndasamkeppni um endurskoðun á hönnun og skipulagi innan skipulagssvæðisins fyrir Ingólfstorg-Kvosin rann út þann 18. janúar sl. Alls bárust 68 tillögur og hefur dómnefnd hafið störf. Um er að ræða fyrra þrepið í samkeppninni - sem er hugmyndasamkeppni, en seinna þrepið er framkvæmdasamkeppni valina tillagna. Allt að 5 tillögur verða valdar úr fyrra þrepi til að taka þátt í framkvæmdasamkeppninni og verður gefin út önnur keppnislýsing fyrir þann hluta. Þátttakendur munu þá vinna frekar úr hugmyndum sínum um hönnun hótels og almenningsrýma innan reitsins.

Áætlað er að dómnefnd ljúki störfum fyrra þreps samkeppninnar fyrir 29. febrúar. Við lok fyrra þreps verður öllum þátttakendum send niðurstaða dómnefndar, án þess að nafnleynd verði rofin, þar sem fram kemur hvaða tillögur hafa verið valdar til þátttöku í seinna þrepi keppninnar. Við upphaf seinna þreps fá þátttakendur, auk keppnislýsingar, nánari forsögn dómnefndar um sína tillögu en stefnt er að því að það verði í mars. Að loknu seinna þrepi verður nafnleynd rofin og niðurstaða dómnefndar birt m.a. verður haldin sýning á þeim tillögum sem bárust í báðum þrepum.

Höfundar tillögu sem valin verður til þátttöku í öðru þrepi fá 2.000.000.- ísl króna með vsk. í greiðslu til útfærslu tillögunar í seinna þrepi samkvæmt nánari skilgreiningu í keppnislýsingu seinna þreps. Eftir annað þrep verða valdar tillögur í 1.-3. sæti og sérstök verðlaun verða veitt eftir annað þrep.

Dómnefnd skipa eftirtaldir:

Tilnefndir af Reykjavíkurborg
-Hjálmar Sveinsson, fulltrúi í Skipulagsráði
-Júlíus Vífill Ingvarsson, fulltrúi í Skipulagsráði
-Kristín Þorleifsdóttir, Ph.D. landslagsarkitekt FÍLA
-Pétur Þór Sigurðsson, lögfræðingur

Tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands
-Páll H. Hjaltason, arkitekt FAÍ, formaður dómnefndar
-Hilmar Þór Björnsson, arkitekt FAÍ
-Sigrún Birgisdóttir, arkitekt FAÍ