Ungmennaráð stilla saman strengi
31.01.2012
Upplestur á frétt 
Ungt fólk í ungmennaráðum borgarinnar hittist til skrafs og ráðagerða á starfsdegi í Þróttheimum mánudaginn 23. janúar sl. Starfsdagurinn er árviss viðburður ungmennaráðanna. Rúmlega 50 manna hópur auk starfsfólks vann ötullega þennan eftirmiðdag og fram á kvöld.
Það voru rúmlega 50 fulltrúar í ungmennaráðum víðsvegar um borgina sem buðu vetrarhríðinni byrginn og mætti til árlegs starfsdags ungmennaráðanna í Reykjavík mánudaginn 23. janúar. Þrátt fyrir langan skóladag voru þáttakendur orkumiklir og tilbúnir í slaginn kl. 17:30. Eftir nokkra hópeflisleiki fékk hópurinn góða gesti í heimsókn með fræðsluerindi. Þau Sigrún Dís Hauksdóttir og Guðmundur Þórir Hjaltason frá Ungmennaráði SAMFÉS stýrðu umfjöllun um mannréttindi með áhugaverðum leikjum sem hópurinn var ánægður með. Þar var meðal annars tekist á um grundvallarspurningar eins og hvort nauðsynlegt sé að fylgja öllum lögum, líka þeim sem maður er ósammála, og hvort það sé siðferðileg skylda að nýta kosningarétt sinn.
Því næst fjallaði Hildur Inga Sveinsdóttir, frumkvöðull, og fyrrum fulltrúi í Reykjavíkurráði ungmenna, um mikilvæg skref og vinnulag til að koma hugmyndum í framkvæmd og gaf öllum ungmennaráðum eintak af verkefnahandbók, The Project Handbook, sem hún vann með styrk frá Evrópu unga fólksins ásamt ungum kollegum sínum á Íslandi, í Svíþjóð og Bretlandseyjum.
Einnig var unnið í smærri hópum þar sem fulltrúar blönduðu sér í hópa þvert á borgina og fjölluðu um hlutverk ungmennaráða og hvað einkennir góð ungmennaráð.
Það var mat þeirra sem tóku þátt í deginum að vel hafi tekist til. Dagurinn hefði gjarnan mátt vera lengri að þeirra mati til að læra og leika enn frekar með viðfangsefni ungmennaráðanna. Fulltrúar í ungmennaráðum bíða því spenntir eftir næsta starfsdegi og möguleikum til frekara samstarfs.