Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Umfangsmiklar endurbætur áformaðar í Breiðagerðisskóla

01.02.2012

Upplestur á frétt 

Umfangsmiklar endurbætur hefjast við elsta hluta Breiðagerðisskóla um leið og skólaárinu lýkur í júní næstkomandi. Þær munu standa yfir fram á vor 2013. Meðan á framkvæmdum stendur munu nemendur á miðstigi sækja nám í skólahúsnæði Háaleitisskóla. Börnin munu hefja og ljúka skóladeginum í Breiðagerðisskóla og verða þau keyrð á milli í skólabíl. Kennarar og annað starfsfólk úr Breiðagerðisskóla mun fylgja þessum nemendum og annar skólastjórnandinn hafa yfirumsjón með skólastarfinu í Háaleitisskóla.

Breiðagerðisskóli er einn elsti skóli borgarinnar. Brýnt er að endurnýja austurálmuna sem er í eldri hluta skólans, en framkvæmdum við hana var slegið á frest fyrir þremur árum í kjölfar efnahagshrunsins. Í álmunni sem er um 900 m² eru m.a. tíu kennslustofur þar sem allt að 170 börn stunda nám. Með því að flytja þau tímabundið á milli skóla er verið að nýta skólahúsnæði borgarinnar sem best og bjóða nemendum í Breiðagerðisskóla upp á eins góða kennsluaðstöðu og völ er á meðan framkvæmdir standa yfir. Valkosturinn var að setja upp 9 færanlegar kennslustofur á lóð Breiðagerðisskóla, en þar með hefði verið tekinn drjúgur hluti af leiksvæði á skólalóðinni. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna framkvæmdanna við Breiðagerðisskóla verði um 170 milljónir króna.

Stefnt er að því að litlar sem engar breytingar verði á skólastarfi í Háaleitisskóla vegna þessara flutninga á skólastarfi. Þeir verða skipulagðir í nánu samstarfi við foreldra og í þeirri fullvissu að vel verði tekið á móti börnum úr Breiðagerðisskóla í Háaleitisskóla, enda eiga börnin í borginni skólana saman.