Menningarfáni til eflingar menningaruppeldis
02.02.2012
Upplestur á frétt 
Menningarfáninn er nýmæli til eflingar menningaruppeldis og var ný heimasíða um Menningarfána Reykjavíkurborgar opnuð miðvikudaginn 1. febrúar s.l. við hátíðlega athöf í Dalskóla. Nemendur úr skólans brugðu á leik með söng- og dansatriði.
Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs, og Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, opnuðu heimasíðuna með aðstoð nemenda í Dalskóla.
Menningarfáni Reykjavíkurborgarar er þróunarverkefni sem miðar að því að efla menningarstarf í leikskólum, grunnskólum og á frístundaheimilum. Menningarfáninn verður viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarstarf og verður veittur í fyrsta sinn á Barnamenningarhátið í vor.
Eitt af markmiðunum með að styðja við og hlúa að listkennslu og skapandi starfi er að auka samfellu og samstarf í skóla- og frístundastarfi. Náin samvinna opnar möguleika á samþættum kennsluaðferðum sem geta leitt til nýstárlegra verkefna í hefðbundnum sem óhefðbundnum greinum. Þegar stefnt er að menningarfána er unnið með hin ýmsu birtingarform lista og menningar með áherslu á strauma og stefnur í barna- og unglingamenningu.
Menningarfáninn er til marks um aukið vægi á listkennslu og skapandi starf í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum og snýr ekki bara að börnum og ungmennum heldur því samfélagi sem þau munu móta þegar þau fullorðnast.
www.menningarfani.is