Vinsæl tölvunámskeið hafin að nýju
14.02.2012
Upplestur á frétt 
Námskeið í tölvufærni sem Reykjavíkurborg hefur staðið fyrir eru hafin að nýju. Námskeiðin sem eru ókeypis hafa reynst mjög vinsæl, aðsókn hefur verið góð og mikill áhugi.
Tölvufærni námskeiðin sem Reykjavíkurborg stendur fyrir byggja á hugmyndinni „ungir kenna öldnum". Þar kenna 12 ára krakkar eldra fólki að nýta sér tölvur og internetið sér til gagns og gamans. Tölvufærir sjálfboðaliðar úr hverfinu sjá um utanumhald námskeiðanna. Námskeiðin leiða til aukinssjálfstæðis og frekari sjálfshjálpar hjá þeim sem þau sækja ogveitayngri kynslóðinni tækifæri til að miðla þekkingu sem þeim er svo sjálfsögð. Verkefnið eflir auk þess félagsauð í hverfunum með nánu samstarfi og samveru kynslóðanna. Flestir þátttakendur vilja ná tökum á því að nota netið sér til hagsbóta, þá með það í huga að skoða dagblöð, fara á facebook eða til ýmissa annarra nota. Kastljós fjallaði um tölvufærninámskeiðið sem haldið var í Hæðargarði í fyrra.
Nú verður fjölgað stöðum þar sem hægt verður að sækja námskeið sem veitir fleiri borgarbúum í hverfum borgarinnar færi á að sækja þau. Námskeiðin verða haldin í þessum félagsmiðstöðvum:
Hvassaleiti 56, á mánudögum frá kl. 13:00 -14:00
Aflagranda 40, á þriðjudögum frá kl. 13:00 - 14:00
Vesturgötu 7, á þriðjudögum frá kl. 10:55 - 11:50
Hæðargarði 31, á þriðjudögum frá kl. 13:30 - 14:30
Árskógum 4, á miðvikudögum frá kl. 13:00 - 14:00
Bólstaðarhlíð 43, á fimmtudögum frá klukkan 13:25 - 14:25
Námskeið hefjast svo á eftirtöldum stöðum í febrúar.:
Korpúlfar í Grafarvogi. (Nánar auglýst síðar)
Gerðuberg í Breiðholti. (Nánar auglýst síðar)
Vitatorg í miðbæ. (Nánar auglýst síðar)
Hægt er að skrá sig í síma 411-11 11 ennfremur er hægt að fá nánari upplýsingar um námskeiðin hjá Birni Guðmundssyni, verkefnisstjóra í síma: 411 4159 eða bjorn.gudmundsson@reykjavik.is