06.02.2012
Upplestur á frétt
Mánudaginn 6. febrúar hefst innritun sex ára barna í grunnskóla og frístundaheimili Reykjavíkur. Innritað er í gegnum Rafræna Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að 1.540 börn í Reykjavík setjist á skólabekk í grunnskólunum næsta haust. Innritun í grunnskóla borgarinnar stendur yfir alla vikuna, en þó er hægt að innrita áfram fram á vorið. Frekari upplýsingar um grunnskólana.
Frekari upplýsingar um innritun og skóladagatal 2012-2013.