Sýningin Undraheimur Legó í Ráðhúsinu til sunnudags
14.02.2012
Upplestur á frétt 
Sýningin Undraheimur Legó sem nú stendur yfir í Tjarnarsal Ráðhússins hefur slegið í gegn. Um síðustu helgi, meðan á Vetrarhátíð stóð, sóttu 11 þúsund manns Ráðhúsið. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá en Undraheimur Legó vakti mesta lukku, ungir sem aldnir skemmtu sér við að skoða það sem fyrir augu bar á sýningunni og spreyttu sig á að byggja úr kubbum sem eru í boði. Ákveðið hefur verið að framlengja sýninguna og stendur hún því til sunnudagsins 19. febrúar.
Í undraheimum Legó gefst gestum og gangandi tækifæri á að sýsla með tannhjól, mótora og fleira og boðið er upp á aðstoð við að skapa eigin módel. Þá verður einnig hægt að byggja kastala eftir eigin teikningum, um að gera að gefa ímyndunaraflinu og sköpunargáfunni lausan tauminn. Undraheimur Legó verður opinn fram á sunnudag milli klukkan 12-17.