Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Viðbygging og endurbætur á nýjum sérskóla

09.02.2012

Upplestur á frétt 

Ráðist verður í nýja viðbyggingu og stórfelldar endurbætur á Klettaskóla, nýjum sameinuðum sérskóla í Reykjavík. Til stendur að koma þar upp 3.400 fermetra viðbyggingu með íþróttaaðstöðu og sundlaug sem þjóna mun skólanum. Þá er gert ráð fyrir að íþróttafélög fatlaðra geti nýtt íþróttasal og sundlaugina. Jafnframt verður eldra húsnæði breytt til að það henti betur starfsemi skólans. Frístundastarf, sem í dag er í leigðu húsnæði, mun flytjast inn í skólann að framkvæmdum loknum. Húsnæði skólans mun stækka um helming við þessar framkvæmdir, úr tæplega 3.000 fermetrum í 6.340 fermetra. Heildarkostnaður við framkvæmdir er áætlaður um 1.970 milljónir króna og er gert ráð fyrir að hönnun og framkvæmdir við byggingu fari fram á árunum 2012-2015 og endurgerð á eldra húsnæði fari fram á árunum 2015-2016. Þegar framkvæmdum lýkur verður öll starfsemi skólans á einum stað, en nú er nemendum ekið bæði í sund og frístund.
Klettaskóli þjónar öllu landinu og annast ráðgjöf vegna nemenda með sérþarfir í öðrum grunnskólum.

Nánari upplýsingar í Framkvæmdasjá

Skólalóðir endurbættar
Á næsta ári stendur einnig til að gera endurbætur á skólaskólum við Hamraskóla, Réttarholtsskóla og leikskólana Árborg og Laugasól. Jafnframt verður ráðist í annan áfanga við endurbyggingu lóðar við Seljaskóla. Samhliða þessum endurbótum á skólalóðum verður ráðist í ýmsar framkvæmdir á lóðum leikskólanna Barónsborgar, Hólaborgar, Nóaborgar og Stakkaborgar. Þá verða gerð boltagerði við Foldaskóla og Breiðagerðisskóla. Gert er ráð fyrir að þessar framkvæmdir muni kosta 270 milljónir króna.

Borgarráð samþykkti tillögur um þessar framkvæmdir á fundi sínum í dag.