menntasvid_banner     Mynd eftir nemanda úr Fellaskóla     

Dagforeldrar

Í borginni starfa eru um 190 dagforeldrar. Þeir eru sjálfstætt starfandi, Leikskólasvið veitir þeim starfsleyfi og sinnir lögbundnu eftirliti með starfseminni. Allir sem fá starfsleyfi til daggæslu í heimahúsum þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði, sbr. reglugerð nr. 907 frá 2005.

Daggjöld eru niðurgreidd vegna barna í daggæslu í heimahúsum. Niðurgreiðslur til einstæðra foreldra og námsmanna geta hafist við 6 mánaða aldur barns, en miðast við 9 mánaða aldur barna hjóna eða sambúðarfólks. 

Foreldrar sem nýta sér þjónustu dagforeldra gera niðurgreiðslusamning við Reykjavíkurborg, sem dagforeldri staðfestir og sendir til þjónustumiðstöðvar í sínu hverfi. Foreldar halda eftir afriti af samningnum. Er vistun lýkur er mikilvægt að segja henni upp á þar til gerðu eyðublaði sem dagforeldri hefur undir höndum. Dagforeldri þarf einnig að staðfesta að barnið sé hætt í vistun.

Bæklingur um daggæslu í heimahúsum 

Listar yfir dagforeldra sem hafa starfsleyfi eftir hverfum eru á heimasíðum þjónustumiðstöðvanna. 
Dagforeldrar í Árbæ og Grafarholti 
Dagforeldrar í  Breiðholti
Dagforeldrar í Grafarvogi og á Kjalarnesi

Dagforeldrar í Laugardal og Háaleiti

Dagforeldrar í Miðborg og Hlíðum

Dagforeldrar í Vestubæ



 


Menntasvið og Leikskólasvið
Reykjavíkurborgar
Fríkirkjuvegi 1
Sími: 411 7000
menntasvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðin

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is