Fréttir
Börnin á Sjónarhóli og Brekkuborg tóku forskot á sæluna og héldu upp á þjóðhátíðardaginn okkar og fóru í skrúðgöngu um hverfið. Nokkrir meðlimir úr skólahljómsveit Grafarvogs léku undir við mikinn fögnuð.
Í sumar verður Frosti með tilraunaverkefni sem ber nafnið Félagsmiðstöð á Hjólum.Félagsmiðstöð á Hjólum er færanleg félagsmiðstöð sem hefur það að markmiði að nálgast krakka í þeirra umhverfi, hvar og hvenær sem er.
Hverfissjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til að efla mannlífið í borginni. Einstaklingar, hópar, félagasamtök eða stofnanir geta sótt um styrk allt að 700 þúsund krónur hver.