Sundlaugar Reykjavíkur
Komdu í sund!
Afgreiðslutími og gjaldskrá sundlauga
Sundlaugar Reykjavíkur eru á átta stöðum um borgina þar sem hægt er að hreyfa sig, slaka á og njóta samveru allt árið um kring.
Í laugunum finnur þú fjölbreytta aðstöðu fyrir alla aldurshópa – hvort sem þú vilt synda nokkrar ferðir, fara í heitan pott, gufu eða eiga góðan dag með fjölskyldunni.
Laugarnar eru hluti af íslenskri sundlaugamenningu sem staðfest hefur verið á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns.
Sundkort í símann
Settu saman þitt kort og veldu það sem hentar þér. Reykjavíkurkortið er þinn aðgangur að því besta sem borgin hefur upp á að bjóða. Þú velur hvað fer á kortið og getur haft það allt í símanum: sundkort, Menningarkort, Ylströndin í Nauthólsvík, Fjölskyldu- og húsadýragarðurinn eða líkamsrækt í Klébergslaug. Þitt er valið!
Þú sækir um kortið í afgeiðslu í næstu sundlaug Reykjavíkur.
Öryggis- og umgengnisreglur
Til að öllum líði vel í sundlauginni biðjum við gesti að sýna tillitssemi og fylgja einföldum reglum um öryggi og umgengni.
Aðgengi og sérklefar
Lagt er upp úr því að sem flestir geti notið sunds. Hér er yfirlit um aðgengi og sérklefa í öllum sundlaugum Reykjavíkur.
Sundleikfimi
Sundleikfimi er skemmtileg og fjölbreytt hreyfing sem fer fram í vatni og er öllum opin. Hér sérðu dagskrá sundleikfimi í sundlaugum Reykjavíkur.
Samflot
Boðið er upp á samflot í Árbæjarlaug, Breiðholtslaug og Grafarvogslaug. Aðeins þarf að greiða aðgangseyri í sundlaugina og í boði er búnaður á staðnum. Umsjónarmaður er yfir flotinu hverju sinni. Samflotin byrja alltaf kl. 20:30.
Frá og með 1. nóvember, dagskrá:
Árbæjarlaug - fyrsta miðvikudag hvers mánaðar
Breiðholtslaug - þriðja miðvikudag hvers mánaðar
Grafarvogslaug - annan fimmtudag hvers mánaðar
Hvað eru mörg í sundi núna?
Hér birtast upplýsingar um fjölda gesta í sundlauginni í rauntíma. Þannig er auðveldara að velja hentugan tíma til að mæta.