Sumardagurinn fyrsti um alla borg

Skóli og frístund Mannlíf

""
Hátíðarhöld verða í öllum hverfum Reykjavíkur í tilefni af sumardeginum fyrsta. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna, þ. á. m. skrúðgöngur, dans- og söngatriði, hoppukastala, andlitsmálun, dýrablessun og víkingaskylmingar.
Ráðhúsið verður með fjölbreytta dagskrá í tilefni af Barnamenningarhátíð þar sem boðið verður upp á myndlistarsýningar, tónlistaatriði, smiðjur og ýmsar uppákomur. Einnig verður spennandi dagskrá á barnaleiklistahátíðinni UNGI í Tjarnarbíó. Hægt er að nálgast nánari dagskrá á vefnum barnamenningarhatid.is.
 
Dagskrá í hverfum Reykjavíkurborgar á sumardaginn fyrsta
 
Árbær
Kl. 9–11   Frítt í Árbæjarlaug.
Kl. 11       Skrúðganga frá Árbæjarlaug að Árbæjartorgi við Ársel.
Kl. 11.30  Fjölskylduhelgistund í Árbæjarkirkju.
Kl. 12–14 Sumarhátíð á Árbæjartorgi. Skemmtidagskrá í Árseli og á útisviði. Grill, veitingasala o.fl.
Kl. 13–15 Inni- og útidagskrá hjá skátafélaginu Árbúum, Hraunbæ 123.
 
Breiðholt
Kl. 13–16  Hátíð við félagsmiðstöðina Hólmasel, Hólmaseli 6. Boðið verður upp á andlitsmálningu og hoppukastala. Skátafélagið Segull, Íþróttafélag Reykjavíkur, Tónskóli Sigurvins og Tónskóli Eddu Borg verða með kynningar á sínu starfi. Þá stíga sigurvegarar Breiðholt's Got Talent á stokk ásamt því sem dansarar frá Danskóla Brynju Péturs sýna. Hátíðinni lýkur með söngatriði frá Öldu Dís.
 
Bústaðahverfi
Kl.12   Grillað í Grímsbæ með Víkingum og 10-11.
Kl.13   Skrúðganga í Bústaðakirkju undir taktföstum tónum Skólahljómsveitar Austurbæjar. Dagskrá í Bústaðakirkju. Kórar kirkjunnar, söngatriði frá félagsmiðstöðinni Bústöðum og línudans úr Hæðargarði.
Kl.14   Afmælishlaup Víkings.
Kl.14 –16  Dagskrá í Víkinni. Hoppukastalar, andlitsmálun, svifbraut skátanna, kökur og kaffi í boði Víkinga og myndasýning leikskólanna í hverfinu.
 
Grafarholt
Kl.10   Framhlaupið kl. 9.30. Hlaupið verður frá íþróttaaðstöðu Fram í Úlfarsárdal. Boðið verður upp á þriggja km. og fimm km. hlaup og keppt verður í þremur flokkum: Börn, unglingar og fullorðnir. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Öll börn fá verðlaunapening. Knattspyrnumót yngstu barna, 8.
flokkur. Veitingasala á íþróttasvæði Fram.
Kl. 11   Dýrablessun í Guðríðarkirkju.
Kl. 12.30  Skrúðganga frá Sæmundarskóla að Guðríðarkirkju, með Skólahljómsveit
Grafarvogs í broddi fylkingar.
Kl. 13   Helgistund í Guðríðarkirkju.
Kl. 13.30  Skemmtun inni og úti við Ingunnarskóla. Bingó og veitingasala knattspyrnudeildar Fram
kl. 13.30. Skottsala íbúa á bílaplani Guðríðarkirkju,
hoppukastalar, andlitsmálning við Guðríðarkirkju og Gréta Salóme syngur.
 
Grafarvogur
Kl. 11  Skrúðganga úr Spönginni í Rimaskóla, Rósarima 11, þar sem fjölbreytt dagskrá
verður inni og úti ásamt kynningum á sumarstarfi Gufunesbæjar, Fjölnis og fleiri aðila.
Kl. 14  Skákmót í Rimaskóla.
Háaleitishverfi
Kl. 11-13 Fjölskylduskemmtun í Kringlumýri, Safamýri 28. Hoppukastali, skemmtiatriði, víkingaskylmingar og Just Dance. Léttar veitingar.
 
Laugardalur
Kl. 13-15  Fjölskylduskemmtun við frístundaheimilið Dalheima, Holtavegi 32. Boðið
verður upp á andlitsmálningu, hoppukastala, víkingaskylmingar, bogfimi,
frisbígolf, skotbolta og körfubolta. Frá kl. 13 - 14 verður boðið upp á grillaðar
pylsur og bulsur.  Kl. 14-15 verður spilaður Bubblu bolti.
 
Miðborg og Hlíðar
Kl. 11-13    Fjölskylduhátíð við Valsheimilið, Hlíðarenda 1. Skemmtiatriði, andlitsmáling,
hoppukastali, veitingasala og margt fleira.
 
Vesturbær
Kl. 11.15 Skrúðganga frá Melaskóla að Frostaskjóli.
Kl. 11.30 – 13 Skemmtidagskrá í Frostaskjóli: Tónlistaratriði, hoppukastalar, töfrar og Dr.
Bike.