Smiðjur fyrir 10-12 ára börn fædd ´98-´00

FRÍSTUNDATILBOÐ FYRIR 10-12 ÁRA

Frístundamiðstöðin Frostaskjól mun í sumar bjóða upp á fjölbreyttar smiðjur fyrir börn í 5. til 7. bekk, fædd 1998 -2000. Smiðjurnar verða starfræktar í fjórar vikur í sumar á tímabilinu 8. júní – 6. Júlí. Mikið úrval verður af smiðjum, viðburðum og ferðum sem standa yfir í hálfan eða heilan dag og hægt að skrá sig í hvern viðburð fyrir sig.

Mikill fjölbreytileiki er í dagskránni hjá okkur og stefnt er að því að allir krakkar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hvert námskeið er auglýst sérstaklega og kosta smiðjurnar annarsvegar 500 kr og hinsvegar 1000 kr. Skráning hefst 2. maí á Rafræn Reykjavík.

Nánari upplýsingar er hægt að fá á http://www.frostaskjol.iseða í síma 411 5700

Húsið opnar kl. 9 á morgnana og er börnunum velkomið að koma þá í hús og bíða þar til dagskrá hefst.

8. -27. júní
Miðvikudagurinn 8. júní kl. 10:00 - 14:00 – Grill og ratleikur kr. 500
Fimmtudagurinn 9. júní kl. 10:00-14:30 – Listanámskeið kr. 1000
Föstudagurinn 10. júní kl. 10:00-15:00 – Sundferð í Breiðholtslaug kr. 500

Þriðjudagurinn 14. júní kl. 10:00-15:00 – Hjólaferð í siglunes  kr. 500
Miðvikudagurinn 15. júní kl. 10:00-12:00 - Pizza gerð kr. 500
Miðvikudagurinn 15. júní kl. 13:00-15:00 - Pizza gerð kr. 500
Fimmtudagur 16. júní kl. 10:00-14:00 - Bakstur- Ertu nýi Jói Fel? kr. 500

Mánudagurinn 20. júní kl. 10:00-12:00 – Konfektgerð kr. 500
Mánudagurinn 20. júní kl. 13:00-15:00 – Konfektgerð kr. 500
Þriðjudagurinn 21. júní kl. 10:00-15:00 – Gönguferð upp á Úlfarsfell kr. 500
Miðvikdagurinn 22. júní kl. 10:00-15:00 – Hjólaferð út á Gróttuvita kr. 500
Fimmtudagurinn 23. júní kl. 10:00-12:00 - Brjóstsykursgerð kr. 500
Fimmtudagurinn 23. júní kl. 13:00-15:00 - Brjóstsykursgerð kr. 500
Föstudagurinn 24. júní  kl. 10:00-14:00 - Hjólaferð í Nauthólsvík  kr. 500

Mánudagurinn 27. júní kl. 10:00-15:00 - Heimsókn í Gufunesbæ kr. 500
Þriðjudagurinn 28.  júní kl. 10:00-14:00 - Bolagerð kr. 500
Miðvikudagurinn 29. júní kl. 10:00-15:00 - Töfranámskeið kr. 1000
Fimmtudagurinn 30. júlí kl. 10:00-15:00 - Hellaferð í Maríuhelli kr. 1000

1-6. Júlí

Föstudagurinn 01.  júlí kl. 10:00-15:00 – Bæjarferð í Hveragerði kr. 1000
Mánudagurinn 04. júlí kl. 10:00-15:00 – Bæjarferð í miðbæ Reykjavík kr. 500
Þriðjudagurinn 05.  júlí kl. 10:00-14:00 – Heimsókn í Landhelgisgæsluna kr. 500
Miðvikudagurinn 06. júlí kl. 09:00-16:00 – Lokadagur. Hópferð í Hvammsvík í Hvalfirði kr. 1000

Nánari upplýsingar

411 5700
www.frostaskjol.is
frostaskjol@itr.is

Skráning

Fer fram frá og með 2. maí fara fram á Rafrænni Reykjavík

Verð

Tvö verð eru í gangi 500 kr. og 1000 kr.

Nánari upplýsingar

411 5700
www.frostaskjol.is
frostaskjol@itr.is

Skráning

Skráning hefst 2. maí á
Rafrænni Reykjavík eða í síma 411 5700
Skráning er bindandi.

Verð

500 kr. / 1000 kr.
Innheimt í lok tímabils


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði