Sumarnámskeið ÍTR
Frostaskjól

Frístundamiðstöðin Frostaskjól

Frostaskjól 2

107 Reykjavík

411 5700

frostaskjol@reykjavik.is

http://www.frostaskjol.is

Smiðjur fyrir 10-12 ára börn fædd ´99-´01

FRÍSTUNDATILBOÐ FYRIR 10-12 ÁRA
 

Frístundamiðstöðin Frostaskjól býður eins og s.l. sumur upp á frístundastarf fyrir börn sem ljúka 5. – 7. bekk nú í vor. Um er að ræða mikið úrval af smiðjum og skemmtilegum viðburðum sem  standa yfir í hálfan eða heilan dag og þarf að skrá sig í hverja smiðju og viðburð fyrir sig.

Mikill fjölbreytileiki er í dagskránni hjá okkur og því ættu allir krakkar á þessum aldri að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Tímabil starfsins er frá 11. júní - 6. júlí, eða fjórar vikur.

Forráðamönnum er bent á að ekki er um vistun að ræða. Mæting í smiðjur og á viðburði er á ábyrgð forráðamanna. Það getur komið fyrir að þær tímasetningar sem gefnar eru upp færist lítillega til ef viðfangsefni eru þess eðlis.

Athugaðu!

Skráning er í allar smiðjur og viðburði vegna takmörkunar á hópastærð. Skráningin hefst 15. maí og fer fram á Rafrænni Reykjavík eða í síma 411 5700. Skráning er bindandi og ekki er endurgreitt sé ekki mætt.  

Dagskráin verður afar fjölbreytt og hefst alla daga í Frostaskjóli og er ýmist heill eða hálfur dagur.

Hér má finna upplýsingar um smiðjurnar.

Það sem verður meðal annars í boði er:

  • Klifur
  • Kajak
  • Brjóstsykursgerð
  • Ratleikur
  • Fingramálning
  • Fimóleir
  • Hárgreiðslusmiðja, framandi fléttur og fleira
  • Keramikdagur
  • Íþróttadagur
  • Söngsmiðja
  • Spilasmiðja
  • Sushi-gerð
  • Galdrasmiðja
  • Útieldun
  • Framandi matreiðsla
  • Pizzagerð
  • Bakstur og kökuskreytingar – 2x sinnum hálfur dagur

 

Smiðjurnar kosta ýmist 560 krónur eða 1125 krónur.

Til baka

Nánari upplýsingar

411 5700
www.frostaskjol.is
frostaskjol@reykjavik.is

Skráning

Skráning hefst 15. maí á
Rafrænni Reykjavík eða í síma 411 5700
Skráning er bindandi.

Verð

560 kr. / 1125 kr.
Innheimt í lok tímabils

  • Senda námskeið á vin
  • Prenta
© 2012 ÍTR

Slóð: http://www.reykjavik.is/sumar/desktopdefault.aspx/categories-431,436/tabid-3008/4788_read-11038/