Á Úlfljótsvatni hefur Skátahreyfingin rekið sumarbúðir um áratugaskeið við góðan orðstýr. Hver dagur á Úlfljótsvatni er ævintýraleg upplifun. Börn og ungmenni fá tækifæri til að komast í snertingu við náttúruna og taka þátt í þroskandi leik og starfi. Þau fá að njóta sín sem einstaklingar en um leið læra þau að taka tillit hvert til annars í hópefli og gangast undir sameiginlegar reglur hópsins.
Svo er dagskráin ekki af verri endanum, má þar nefna sund- og bátsferðir í vatninu, leiki, fótbolta, ratleiki, kassabíla, gönguferðir, frumbyggjastörf, vatnasafarí, gróðursetningu, leiklist, kvöldvökur, varðelda, klifur í klifurturni, sig, náttúruskoðun og margt, margt fleira.
Leiðbeinendur í sumarbúðunum eru allir virkir skátar eða í starfi í björgunarsveitum og eru á aldrinum 18–35 ára. Allir starfsmenn Útilífsmiðstöðvar skáta fara á skyndihjálparnámskeið. Umhverfi Úlfljótsvatns, í bakgarði Þingvalla, er ólýsanlegt og aðstæður til útiveru og skemmtunar með besta móti.