Skráning í starf hjá ÍTR

SKRÁNING Í SUMARFRÍSTUND, SMIÐJUR, SMÍÐAVELLI, SIGLUNES OG FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐINN
Hægt verður að skrá þátttakendur í gegnum Rafræna Reykjavík frá og með 2. maí.

SKRÁNING Í SUMARFRÍSTUND:
Sumarfrístund er heiti yfir frístundaheimilin sem eru með sumarstarf (fyrir börn fædd 2001-2004) og sumarstarf frístundaklúbbanna og félagsmiðstöðvarinnar Öskju. Vinsamlega athugið að skráningunni lýkur kl. 12.00 á föstudögum, eigi barn að geta byrjað á mánudeginum á eftir. Ef hætt er við þátttöku án þess að tilkynnt hafi verið um forföll með formlegum hætti til ÍTR á miðvikudegi fyrir upphaf dvalar, þá mun gjald verða innheimt að fullu.

SKRÁNING Í ANNAÐ SUMARSTARF ÍTR:
Annað sumarstarf ÍTR eru smiðjur fyrir 10-12 ára börn (fædd 1998-2000), smíðavellir fyrir 8-12 ára (fædd 1998-2002) siglinganámskeið í Siglunesi og dýranámskeið í Húsdýragarðinum. Skráning er í allar smiðjur og viðburði vegna takmörkunar á hópastærð. Skráning á smiðjurnar og smíðavelli er óafturkræf. 

FÉLAGSMIÐSTÖÐVASTARF FYRIR UNGLINGA FÆDDA 1995 - 1997
13 - 16 ára unglingar geta komið í félagsmiðstöðvarnar á auglýstum opnunartímum án þess að skrá sig.

Athugið að ekki er hægt að nýta frístundakortið í sumarstarf á vegum ÍTR. 

Ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið í frístundamiðstöðvar ÍTR (helst fyrir hádegi) og í þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð með skráningu. Ekki er hægt að skrá börn á sumarnámskeið í gegnum síma. Starfsfólk þjónustumiðstöðva, frístundamiðstöðva og Símavers Reykjavíkurborgar (s. 411 1111) geta þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.

SKRÁNING Í ANNAÐ SUMARSTARF
Upplýsingar um skráningu í annað sumarstarf en hjá ÍTR er að finna á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði