Gjaldskrá í sumarstarfi Reykjavíkurborgar 2012

SUMARFRÍSTUND FYRIR 6-9 ÁRA

Grunngjald fyrir eina viku sumarfrístund kl. 9.00-16.00 er kr. 7.510. Þar sem hægt er að velja um mislangan vistunartíma er verð fyrir viðbótarstund frá kl. 8.00-9.00 að morgni eða kl. 16.00-17.00 kr. 2.185.

Heil vika - fimm virkir dagar:
Verð fyrir 5 daga kl. 9.00-16.00 - 7.510 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 5 daga kl. 8.00-9.00 - 2.185 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 5 daga kl. 16.00-17.00 - 2.185 kr.

Styttri vika - fjórir virkir dagar
Verð fyrir 4 daga kl. 9.00-16.00 - 6.925 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 4 daga kl. 8.00-9.00 - 1.890 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 4 daga kl. 16.00-17.00 - 1.890 kr.


Veittur er 20% systkinaafsláttur. Vinsamlegast athugið að ef skráður þátttakandi hættir við þátttöku í sumarfrístund, en hefur ekki tilkynnt forföll með formlegum hætti til skóla- og frístundasviðs á miðvikudegi fyrir upphaf námskeiðs þá mun námskeiðsgjald vera innheimt að fullu.

Ef barn hefur hefur átt lögheimili skemur en tvö ár á Íslandi og annað eða báðir foreldrar eru af fyrstu kynslóð innflytjenda, þá fær barnið þrjár vikur fríar í sumarfrístund.

DÝRANÁMSKEIÐ Í FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐI

21.500 
5 daga námskeið
17.500  4 daga námskeið

Veittur er 20% systkinaafsláttur.
Innifalið í þátttökugjaldi er heitur matur í hádeginu, síðdegishressing, skemmtileg og lifandi fræðsla þar sem dýr garðsins koma mikið við sögu og dvöl í garðinum allan daginn auk dagpassa í leiktækin við lok námskeiðs.

SIGLINGA- OG RÓÐRARNÁMSKEIÐ Í SIGLUNESI

Siglinganámskeið fyrir 9-12 ára í 5 daga (hálfur dagur) - 5.600 kr.
Siglinganámskeið fyrir 13-16 ára í 5 daga  frá 16.00-19.00 - 12.900 kr.

Vatnasportklúbbur Sigluness fyrir 10-16 ára:

7. vikur (Tímabilið 11.06. - 27.07) - 11.200 kr
4. vikur (Timabilið 11.06. - 06.07) - 6.400 kr
3. vikur (Tímabilið 09.07. - 27.07) - 4.800 kr 
 

NÁMSKEIÐ/SMIÐJUR FYRIR 10-12 ÁRA
Verð fyrir stök námskeið/smiðjur:
Verð A:    560 kr.
Verð B: 1.125 kr.

SMÍÐAVELLIR FYRIR 8 - 12 ÁRA (f. ´99-´03)
Verð: 1.250 kr.

Vinsamlegast athugið að skráning í þessi námskeið/smiðjur er bindandi og smiðjugjald er óendurkræft.

 

FÉLAGSMIÐSTÖÐVASTARF
Opið starf félagsmiðstöðvanna er gjaldfrjálst en einstaka dagskrárliðir geta kallað á efniskostnað og þá er það auglýst sérstaklega á vegum viðkomandi félagsmiðstöðvar.

  
GREIÐSLUFYRIRKOMULAG
Greitt er fyrir fram fyrir hvert námskeið. Mögulegt er að greiða námskeiðsgjaldið með eftirfarandi hætti:
a) Með kreditkortum (VISA/EURO).
b) Með heimsendum greiðsluseðlum.

Eindagi greiðsluseðils er 30 dögum eftir útgáfu. Hafi gjaldið ekki verið greitt á eindaga leggjast á dráttarvextir og vanskilakostnaður. Hafi ekki verið greitt innan 50 daga frá gjalddaga er krafan send innheimtuþjónustu Momentum til innheimtu.

 


Gleðilegt sumar!

Upplýsingar um sumarstarf  hjá Reykjavíkurborg sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og með einföldum hætti er hægt að leita að tilboðum í þínu hverfi eftir aldri, tímabilum og áhugasviði. 

Sumarið 2012 verður mikið framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur (SFS) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2002- 2005 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1999 - 2001 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1996-1998. 

Íþrótta- og tómstundasvið (ÍTR) býður upp á námskeið í Siglunesi (fædd 1996-2003) og Fjölskyldu- og húsdýragarði fyrir 10-12 ára (fædd 2000-2002). Skráning fer fram á Rafrænni Reykjavík.

 

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði