Spurt og svarað
Hægt er að skrá þátttakendur í allt sumarstarf ÍTR í gegnum Rafræna Reykjavík frá 2. maí 2011.
Vinsamlega athugið að í sumarfrístund lýkur skráningu í starf kl. 12.00 á föstudögum, eigi barn að geta byrjað á mánudeginum á eftir.
Upplýsingar um skráningu í annað sumarstarf en hjá ÍTR er að finna á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.
Gengið er frá greiðslu í sumarstarf ÍTR við skráningu en innheimt er mánaðarlega. Hægt er að greiða með kreditkorti eða óskað eftir heimsendum gíróseðli.
Upplýsingar um greiðslu fyrir annað sumarstarf en hjá ÍTR er að finna á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.
Hægt er að óska eftir afskráningu í Sumarfrístund, Dýranámskeið og á Siglinganámskeið í Siglunes í síðasta lagi á miðvikudegi áður en námskeið hefst með því að hafa samband við viðkomandi frístundamiðstöð eða starfsstað. Sé það hinsvegar ekki gert þarf að greiða fyrir námskeiðið/ þjónustuna.
Ársel í Árbæ, s: 411-5800,
Frostaskjól í Vesturbæ, s: 411-5700,
Gufunesbær í Grafarvogi, s: 520-2300,
Kampur í Miðborg og Hlíðum, s: 411-5560,
Kringlumýri í Laugardal og Háaleiti, s: 411-5700
Miðberg í Breiðholti, s: 411-5750
Fjölskyldu- og húsdýragarð, s: 411-5900
Siglunes afskráningar fara fram hjá Kampi sjá hér að ofan
Ef ekki næst í viðkomandi frístundamiðstöð er hægt að hafa samband við ÍTR í síma 411-1111.
Ekki er hægt að afskrá börn í smiðjur fyrir 10-12 ára og á smíðavelli
Nei, ekki er hægt að nota Frístundakortið á hefðbundin sumarnámskeið sem eru á viku eða tveggja vikna grunni.
ÍTR veitir 20% systkinafslátt af sumarfrístund, Siglunes og Fjölskyldu- og húsdýragarð.
Ekki er veittur systkinaafsláttur í sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára.
Upplýsingar um afslætti í öðru sumarstarfi en hjá ÍTR er að finna á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.
Eitt af markmiðum með sumarstarfi ÍTR er að börnin fái að kynnast borginni á sem fjölbreyttastan máta og mikið er lagt upp úr útiveru og hreyfingu. Vikurnar eru oft þematengdar og þá er unnið með ákveðið þema út frá hinum ýmsu sjónarhornum.
Á námskeiðum og í opnu starfi fyrir 10-12 ára börn hjá ÍTR er megináhersla lögð á að bjóða upp á fjölbreytt starf til að þátttakendur kynnist ólíkum og krefjandi viðfangsefnum. Jafnframt er lögð áhersla á virkni og sjálfstæði.
Starfsemi félagsmiðstöðva miðar að því að bjóða öllum unglingum upp á aðstöðu til afþreyingar og skapandi viðfangsefna með jafnöldrum sínum undir handleiðslu hæfra starfsmanna. Yfir sumartímann er sérstök áhersla á að virkja unglinga enn frekar í útiveru, hreyfingu og skapandi starf.
Já, þar sem sumarstarf ÍTR er mikið á ferð og flugi þarf að nesta börnin með hollu og góðu nesti. Um er að ræða morgunhressingu, hádegissnarl og síðdegishressingu. Og muna að þau hafi nóg að drekka þar sem oftar en ekki þá verða þau þyrst af hreyfingunni og leikjunum.
Upplýsingar um nesti í öðru sumarstarfi en hjá ÍTR er að finna á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.
Á heimsíðu viðkomandi frístundamiðstöðvar, félagsmiðstöðvar, frístundaklúbbs eða frístundaheimilis er að finna dagskrá fyrir hverja viku sumarstarfstímans.
Upplýsingar um dagskrá í öðru sumarstarfi en hjá ÍTR er að finna á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.