Gleðilegt sumar!

Upplýsingar um sumarstarf  hjá Reykjavíkurborg sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og með einföldum hætti er hægt að leita að tilboðum í þínu hverfi eftir aldri, tímabilum og áhugasviði. 

Sumarið 2012 verður mikið framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur (SFS) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2002- 2005 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1999 - 2001 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1996-1998. 

Íþrótta- og tómstundasvið (ÍTR) býður upp á námskeið í Siglunesi (fædd 1996-2003) og Fjölskyldu- og húsdýragarði fyrir 10-12 ára (fædd 2000-2002). Skráning fer fram á Rafrænni Reykjavík.

 

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði