Listsmiðja fyrir 6-9 ára

Umhverfið okkar sem efniviður til sköpunar
Listsmiðja: Sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 6–9 ára
Kjarvalsstaðir
Dagana 18.–21. júní frá kl. 13–16.

Listsmiða fyrir börn á aldrinum 6–9 ára þar sem þau fá að vinna að skapandi verkefnum í tengslum við umhverfi Kjarvalsstaða og sýninguna Íslensk myndlist 1900–1950. Skoðaðir verða þeir fjölbreyttu litir og form sem finnast í umhverfinu og þeir nýttir til að útfæra teikningar og skúlptúra bæði innan- og utandyra. Í lok námskeiðsins verður fjölskyldu og vinum sýndur afrakstur námskeiðsins.

Leiðbeinendur eru Ásdís Spanó myndlistamaður og Hugrún Þorsteinsdóttir arkitekt. Þær hafa starfað saman að ýmsum verkefnum tengdum listkennslu fyrir börn í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur og eru báðar menntaðir listgreinakennarar.

Dagskrá:
Þriðjudag 18. júní
Við kynnumst, skoðum safnið og umhverfi þess.
Teiknað á Klambratúni.

Miðvikudag 19. júní
Unnið í Smiðju Kjarvalsstaða, málað og drög að skúlptúrum unnin.

Fimmtudag 20. júní
Vettvangsferð í Ásmundarsafn.

Föstudag 21. júní
Skúlptúrar útfærðir og sýning sett upp fyrir fjölskyldu og vini.

Skráning:
Email: listsmiðja@gmail.com
Símanúmer: 866 3906 / 862 6099
Verð: 11.200 kr.


Senda á Facebook

Nánari upplýsingar

866 3906 / 862 6099
listsmiðja@gmail.com
www.listasafnreykjavikur.is

Skráning

866 3906 / 862 6099 listsmiðja@gmail.com

Verð

11.200 kr.


Gleðilegt sumar!

Hér má finna upplýsingar um sumarstarf hjá Reykjavíkurborg sem og fjölmargra annarra aðila. Með einföldum hætti er hægt að leita að tilboðum í þínu hverfi eftir aldri, tímabilum og áhugasviði. 

Sumarið 2013 verður mikið framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur (SFS) býður sumarfrístund á frístundaheimilunum fyrir 6-9 ára börn, fædd 2003-2006, smíðavellir (sköpun, smíðar, útivist) fyrir 9-12 ára börn, fædd 2000-2003, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 2000-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára, fædd 1997-1999. Skráning hefst í sumarfrístund 29. apríl, en annað sumarstarf SFS 15. maí.

Íþrótta- og tómstundasvið (ÍTR) býður námskeið í Siglunesi (fædd 1997-2004) og Fjölskyldu- og húsdýragarði fyrir 10-12 ára (fædd 2001-2003). Skráning hefst 29. apríl.

Félög í Reykjavík og nágrenni standa fyrir fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn frá 4 til 16 og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði