Leikjanámskeið fyrir 6-10 ára

Leikjanámskeið í Neskirkju

Í sumar heldur Neskirkja tvö leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 – 10 ára (fædd 2000 – 2004). Námskeiðin eru frá mánudegi til föstudags, klukkan 13 – 17. Á námskeiðunum gefst börnunum kostur á að kynnast kirkjunni og boðskap hennar í leik og starfi, auk þess að öðlast dýrmæt tengsl við nýja félaga. Áhersla er lögð á virðingu og vináttu á námskeiðunum og miðast leikir og verkefni við að efla og styrkja hópinn og einstaklinginn. Námskeiðunum er stjórnað af reyndu fólki sem hefur starfað með börnum á ýmsum vettvangi.

Á leikjanámskeiðunum er fjölbreytt dagskrá í boði úti og inni. Meðal annars verður farið í hópleiki, þrautaleiki, skapandi verkefni unnin og farið í strætóferðir. Einu sinni á námskeiði er farið í ferð út fyrir borgina og slegið upp grillveislu.

Námskeið 12.– 5. ágúst*
Námskeið 28. – 12. ágúst
*Fjögurra daga námskeið

Skráning og verð
Þátttökugjald er 5.000 (4.000) krónur. Veittur er systkinaafsláttur. Innritun fer fram í Neskirkju alla virka daga í síma 511-1560 eða á neskirkja@neskirkja.is

Nánari upplýsingar

511 1560
www.neskirkja.is
neskirkja@neskirkja.is

Skráning

Skráning í Neskirkju alla virka daga í síma 511 1560 og á neskirkja@neskirkja.is

Verð

5.000 kr.
4.000 kr. (fjögurra daga námskeið).
Veittur er systkinaafsláttur og einnig er veittur afsláttur ef farið er á fleiri en eitt námskeið.


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði