Tækni-LEGO fyrir 6-13 ára

UPPBYGGING NÁMSKEIÐA
Á staðnum eru yfir 100 kíló af tækni-LEGO-kubbum sem hægt er að byggja úr.
Krakkarnir læra að nota t.d. tannhjól, gírun, mótora, lofttjakka og fleira og fá aðstoð við að skapa sín eigin módel.
Skroppið er út til að fá sér ferskt loft ef veður og aðstæður leyfa. 
Stærð hópa er miðuð við 12 krakka.

LEIÐBEINANDI
Nafn: Jóhann Breiðfjörð.
Starfaði í 5 ár sem hönnuður, hugmyndasmiður og ráðgjafi hjá tæknideild danska leikfangafyrirtækisins LEGO (LEGO Technik).
Hefur haldið yfir 300 nýsköpunarnámskeið fyrir grunnskólanemendur undanfarin ár og fjölda fyrirlestra um skapandi hugsun bæði innan fyrirtækja og á eigin vegum.
Hefur einnig haldið fjölmörg “Tækni-LEGO námskeið” innan skóla, í félagsmiðstöðvum og á vegum Mímis símenntunar.

TÍMI OG STAÐUR
Reynt er að skipta í hópa eftir aldri. Gert er ráð fyrir því að 6–9 ára séu kl. 09:00–12:00 og 10–12 ára kl. 13:00–16:00, eina viku í senn.
Rétt er að taka fram að aldursskiptingin er ekki heilög og komið er til móts við alla.
Ef fullt er í yngri hóp tiltekna viku eða ef það hentar betur að skrá í hópinn sem er eftir hádegi þá er það í fínu lagi.
Eins er í lagi að eldri krakkarnir séu skráðir fyrir hádegi ef það hentar betur.
Hópastærð er miðuð við 12 en tekið er við skráningum á biðlista þar sem upp geta komið veikindi eða önnur forföll með stuttum fyrirvara. Námskeiðin eru öllum opin.

Staðsetningar :

 Námskeið

Dagsetning 

Staður 

Tími 

 1

06.-10. júní

Mýrarhúsaskóli

 09:00-12:00

 2

06.-10. júní

Mýrarhúsaskóli

13:00-16:00

 3*

14.-16. júní

Borgarskóli

09:00-12:00

 4*

14.-16. júní

Borgarskóli

 13:00-16:00

 5

20.-24. júní

Ártúnsskóli

 09:00-12:00

 6

20.-24. júní

Ártúnsskóli

 13:00-16:00

 7

27.-01. júlí

Engjaskóli

 09:00-12:00

 8

27.-01. júlí

Engjaskóli

 13:00-16:00

 9

04.-08. júlí

Vesturbæjarskóli

 09:00-12:00

 10

04.-08. júlí

Vesturbæjarskóli

 13:00-16:00

 11

11.-15.júlí

(skýrist fljótlega)

 09:00-12:00

 12

11.-15.júlí

(skýrist fljótlega)

 13:00-16:00

 13

18.-22.júlí

Lindaskóli

 09:00-12:00

 14

18.-22.júlí

Lindaskóli

 13:00-16:00

 15

25.-29.júlí

Austurbæjarskóli

 09:00-12:00

 16

25.-29.júlí

Austurbæjarskóli

 13:00-16:00

 17

08.-12.ágúst

Vogaskóli

 09:00-12:00

 18

08.-12.ágúst

Vogaskóli

 13:00-16:00

 19

15.-19.ágúst

 Háteigsskóli

 09:00-12:00

 20

15.-19.ágúst

 Háteigsskóli

 13:00-16:00

* Þriggja daga námskeið. Verð: 6.300 kr. (Hvítasunna og 17. júní)

VERÐ
Vikan kostar 10.500 kr.
Vikan: 14.-16. júní kostar  6.300 kr. þar sem um 3 daga er að ræða.
Veittur er 10% systkinaafsláttur.
Foreldrar eru hvattir til að skrá börnin sín tímanlega þar sem takmarkaður fjöldi kemst á hvert námskeið og undanfarin sumur hafa færri komist að en vildu.

GREIÐSLUFYRIRKOMULAG
Hægt er að greiða námskeiðsgjald inn á reikning: 0334-13-202642. Kennitala móttakanda er: 260674-3589 og nafn: Jóhann Guðmundur Breiðfjörð.
Senda þarf staðfestingu á greiðslu á netfangið: greitt@nyskopun.net og til öryggis ætti að setja nafn barns/barna í tilvísun.
Kvittanir verða svo afhentar þegar námskeiðin hefjast.
Því miður er ekki hægt að greiða með korti.
Staðfesta þarf skráningu með greiðslu í síðasta lagi miðvikudaginn áður en námskeið hefst.
Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir þann tíma verður bætt í hópa af biðlistum.

Nánari upplýsingar

421 7161, 697 8692
johann@nyskopun.net
www.nyskopun.net

Skráning

Vinsamlegast fyllið út skráningarform á forsíðu www.nyskopun.net

Verð

10.500 kr.
6.300 kr. (3 dagar)
Veittur er 10% systkinaafsláttur


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði