Tækni-LEGO fyrir 6-13 ára
UPPBYGGING NÁMSKEIÐA
Á staðnum eru yfir 100 kíló af tækni-LEGO-kubbum sem hægt er að byggja úr.
Krakkarnir læra að nota t.d. tannhjól, gírun, mótora, lofttjakka og fleira og fá aðstoð við að skapa sín eigin módel.
Skroppið er út til að fá sér ferskt loft ef veður og aðstæður leyfa.
Stærð hópa er miðuð við 12 krakka.
LEIÐBEINANDI
Nafn: Jóhann Breiðfjörð.
Starfaði í 5 ár sem hönnuður, hugmyndasmiður og ráðgjafi hjá tæknideild danska leikfangafyrirtækisins LEGO (LEGO Technik).
Hefur haldið yfir 300 nýsköpunarnámskeið fyrir grunnskólanemendur undanfarin ár og fjölmörg "Tækni-LEGO námskeið" innan skóla og í félagsmiðstöðvum.
TÍMI OG STAÐUR
Reynt er að skipta í hópa eftir aldri. Gert er ráð fyrir því að 6–9 ára séu kl. 09:00–12:00 og 10–13 ára kl. 13:00–16:00, eina viku í senn.
Rétt er að taka fram að aldursskiptingin er ekki heilög og komið er til móts við alla.
Ef fullt er í yngri hóp tiltekna viku eða ef það hentar betur að skrá í hópinn sem er eftir hádegi þá er það í fínu lagi. Eins er í lagi að eldri krakkarnir séu skráðir fyrir hádegi ef það hentar betur.
Hópastærð er miðuð við 12 en tekið er við skráningum á biðlista þar sem reynslan hefur sýnt að upp geta komið veikindi eða önnur forföll með stuttum fyrirvara.
Námskeiðin eru öllum opin.
Staðsetningar og tímasetningar:
Nr: Dagsetning: Mán: Staðsetning: Klukkan:
1 11 .- 15. júní Mýrarhúsaskóli 09:00 - 12:00
2 11 .- 15. júní Mýrarhúsaskóli 13:00 - 16:00
3 18 .- 22. júní Borgaskóli 09:00 -12:00
4 18. - 22. júní Borgaskóli 13:00 -16:00
5 25. - 29. júní Rósenborg á Akureyri 09:00 - 12:00
6 25. - 29. júní Rósenborg á Akureyri 13:00 - 16:00
7 09. - 13. júlí Lindaskóli 09:00 -12:00
8 09. - 13. júlí Lindaskóli 13:00 -16:00
9 16 .- 20. júlí Vesturbæjarskóli 09:00 -12:00
10 16 .- 20. júlí Vesturbæjarskóli 13:00 -16:00
11 23. - 27. júlí Austurbæjarskóli 09:00 - 12:00
13 23 .- 27. júlí Austurbæjarskóli 13:00 - 16:00
14* 07. - 10. ágúst Vogaskóli 09:00 -12:00
15* 07. - 10. ágúst Vogaskóli 13:00 -16:00
16 13. - 17. ágúst Háteigsskóli 09:00 - 12:00
17 13. - 17. ágúst Háteigsskóli 13:00 - 16:00
* Fjögurra daga námskeið.
VERÐ
Vikan kostar: 10.500.
Vikan 07.-10. ágúst kostar kr. 8.400 þar sem um 4 daga er að ræða (frídagur verslunarmanna 06. ágúst).
Veittur er 10% systkinaafsláttur af heildarverði.
Foreldrar eru hvattir til að skrá börn sín tímanlega þar sem takmarkaður fjöldi kemst á hvert námskeið og undanfarin ár hafa færri komist að en vildu. Þegar hópur er orðinn fullur fer skráningin , sem send er inn, sjálfkrafa á biðlista og svo verður haft samband ef pláss losnar. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt að upp geta komið veikindi eða önnur forföll með stuttum fyrirvara.
GREIÐSLUFYRIRKOMULAG
Hægt er að greiða námskeiðsgjald inn á reikning: 0334 - 13 - 202642.
Kennitala móttakanda er: 260674-3589 og nafn: Jóhann Guðmundur Breiðfjörð.
Senda þarf staðfestingu á greiðslu á netfangið: greitt@nyskopun.net og til öryggis ætti að setja nafn barns / barna sem skýringu.
Kvittanir verða svo afhentar þegar námskeiðin hefjast.
Því miður er ekki hægt að greiða með korti.
Staðfesta þarf skráningu með greiðslu í síðasta lagi þriðjudaginn áður en námskeið hefst.
Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir þann tíma verður bætt í hópa af biðlistum.
Verð
10.500 kr.
Veittur er 10% systkinaafsláttur