Dýranámskeið fyrir 10-12 ára
DÝRANÁMSKEIÐ Í FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐINUM
Námskeiðið stendur 10–12 ára krökkum (f. 1999–2001) til boða í sumar. Á námskeiðinu vinna krakkarnir með dýr garðsins og námskeiðið því upplagt fyrir krakka sem áhuga hafa á dýrum almennt. Þá er einnig farið í skemmtilega umhverfisfræðslu, gerðar eru vísindatilraunir og undirstöðuatriði tálgunar kynnt fyrir krökkunum.
Hvern dag gefst krökkunum tækifæri á að kíkja inn fyrir girðinguna hjá einhverri dýrategund og komast þá í mikið návígi við dýrin og getur það verið mjög spennandi. Námskeiðið er fimm virkir dagar og hefst kl. 10.00 og lýkur um kl. 15.00 en þá tekur við frjáls tími innan garðsins til kl. 18.00 ef vilji er fyrir hendi. Á lokadegi námskeiðsins er gert ráð fyrir frjálsum tíma þar sem allir þátttakendur fá passa í leiktæki Fjölskyldugarðsins. Það komast 20 krakkar að í hverri viku en þeim verður svo skipt í tvo hópa.
Frá 02. maí verður hægt að smella á viðkomandi viku til að fara beint í skráningu í Rafrænni Reykjavík.
NámskeiðTímabil
1. námskeið: 6. til 10. júní / Fullbókað
2. námskeið: 14. til 16. júní (3 daga námskeið) / Fullbókað
3. námskeið: 20. til 24. júní / Fullbókað
4. námskeið: 27. júní til 1. júlí / Fullbókað
5. námskeið: 4. til 8. júlí / Fullbókað
6.námskeið: 11. 15. júlí / Fullbókað
7.námskeið: 18. til 22. júlí / Fullbókað
8.námskeið: 25. til 29. júlí / Fullbókað
9.námskeið: 2. til 5. ágúst / Fullbókað
10.námskeið: 8. til 12. ágúst / Fullbókað
11.námskeið: 15. til 19. ágúst / Fullbókað
SKRÁNING
Skráning á sumarnámskeið Fjölskyldu- og húsdýragarðsins er í gegnum Rafræna Reykjavík www.reykjavik.is og byrjað verður að skrá 20.apríl.Þátttökugjald er 21.500 kr. og veittur er 20% systkinaafsláttur.Þátttökugjald fyrir 4 daga námskeið er 17.500 krónur og fyrir 3 daga námskeið 13.500.
Innifalið í þátttökugjaldi er heitur matur í hádeginu, síðdegishressing, skemmtileg og lifandi fræðsla þar sem dýr garðsins koma mikið við sögu og dvöl í garðinum allan daginn auk dagpassa í leiktækin við lok námskeiðs.
Verð
21.500 kr. (5 dagar)
17.500 kr. (4 dagar)
13.500 kr. (3 dagar)
Veittur er 20% systkinaafsláttur