Dýranámskeið fyrir 10-12 ára
DÝRANÁMSKEIÐ Í FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐINUM
Námskeiðið stendur 10–12 ára krökkum (f. 2000–2002) til boða í sumar. Á námskeiðinu vinna krakkarnir með dýr garðsins og námskeiðið því upplagt fyrir krakka sem áhuga hafa á dýrum almennt. Þá er einnig farið í skemmtilega umhverfisfræðslu, gerðar eru vísindatilraunir og undirstöðuatriði tálgunar kynnt fyrir krökkunum.
Hvern dag gefst krökkunum tækifæri á að kíkja inn fyrir girðinguna hjá einhverri dýrategund og komast þá í mikið návígi við dýrin og getur það verið mjög spennandi. Námskeiðið er fimm virkir dagar og hefst kl. 10.00 og lýkur um kl. 15.00 en þá tekur við frjáls tími innan garðsins til kl. 18.00 ef vilji er fyrir hendi. Á lokadegi námskeiðsins er gert ráð fyrir frjálsum tíma þar sem allir þátttakendur fá passa í leiktæki Fjölskyldugarðsins. Það komast 20 krakkar að í hverri viku en þeim verður svo skipt í tvo hópa.
Námskeið Tímabil
1. námskeið: 11. til 15. júní //Full bókað
2. námskeið: 18. til 22. júní //Full bókað
3. námskeið: 25. til 29. júní //Full bókað
4. námskeið: 02. til 06. júlí //Full bókað
5. námskeið: 09. til 13. júlí //Full bókað
6. námskeið: 16. til 20. júlí //Full bókað
7. námskeið: 23. til 27. júlí //Full bókað
8. námskeið: 30. júlí til 03. ágúst //Full bókað
9. námskeið: 07. til 10. ágúst (4 daga námskeið) //Full bókað
10. námskeið: 13. til 17. ágúst //Full bókað
SKRÁNING
Skráning á sumarnámskeið Fjölskyldu- og húsdýragarðsins er í gegnum Rafræna Reykjavík www.reykjavik.is. Þátttökugjald er 21.500 kr. og veittur er 20% systkinaafsláttur. Þátttökugjald fyrir 4 daga námskeið er 17.500 krónur.
Innifalið í þátttökugjaldi er heitur matur í hádeginu, síðdegishressing, skemmtileg og lifandi fræðsla þar sem dýr garðsins koma mikið við sögu og dvöl í garðinum allan daginn auk dagpassa í leiktækin síðasta daginn.
Verð
21.500 kr. (5 dagar)
17.500 kr. (4 dagar)
Veittur er 20% systkinaafsláttur