Golfnámskeið fyrir 6-12 ára
Námskeið fyrir krakka á aldrinum 6 til 12 ára, fædd 1999-2005
Fimm daga og eitt þriggja daga námskeið þar sem krakkanir læra helstu grunntækni golf íþróttarinnar í formi leikja og góðs félagsskapar.
Þátttakendum verður skipt í smærri hópa og hefur hver hópur sinn kennara. Skipt verður í hópa eftir aldri og kunnáttu þannig að allir njóti sín sem best. Hámarks fjöldi á hvert námskeið er 20 krakkar.
Vikunni lýkur með þrautum og pizzuveilsu og einnig fá krakkarnir viðurkenningarskjöl að námskeiði loknu. Námskeiðin fara fram á Grafarholti hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.
Krakkarnir eru beðnir um að koma klædd eftir veðri og með aukafatnað viðbúin öllu, einnig er æskilegt að krakkarnir hafi með sér hollt nesti og drykk. Öllum er heimilt að taka þátt hvort sem viðkomandi er félagi í golfklúbbi eða ekki.
Umsjón með námskeiðunum hafa: Kennarar PROGOLF og afrekskylfingar GR þeim til aðstoðar.
Námskeiðin verða alls 16 (fyrir eða eftir hádegi) allar neðangreindar vikur:
Námskeið | Dagss. | | Tímabil | |
nr.1 | 06. - 10. | júní | fyrir hádegi | 9:00 - 12:00 |
nr.2 | 06. - 10. | júní | eftir hádegi | 13:00 - 16:00 |
nr.3 | 14. – 16* | júní | fyrir hádegi | 8:00 - 12:00 |
nr.4 | 14. - 16*. | júní | eftir hádegi | 13:00 - 17:00 |
nr.5 | 20. - 24. | júní | fyrir hádegi | 9:00 – 12:00 |
nr.6 | 20. - 24. | júní | eftir hádegi | 13:00 - 16:00 |
nr.7 | 27. - 01. | Júni/júlí | fyrir hádegi | 9:00 – 12:00 |
nr.8 | 27 - 01. | Júní/júlí | eftir hádegi | 13:00 - 16:00 |
nr.9 | 04. - 08. | júlí | fyrir hádegi | 9:00 – 12:00 |
nr.10 | 04. - 08. | júlí | eftir hádegi | 13:00 - 16:00 |
nr.11 | 25. - 29. | júlí | fyrir hádegi | 9:00 - 12:00 |
nr.12 | 25.- 29. | júlí | eftir hádegi | 13:00 - 16:00 |
nr.13 | 08. - 12. | ágúst | fyrir hádegi | 8:00 - 12:00 |
nr.14 | 08. - 12. | ágúst | eftir hádegi | 13:00 - 17:00 |
nr.15 | 15. – 19. | ágúst | fyrir hádegi | 9:00 - 12:00 |
nr.16 | 15. – 19. | ágúst | eftir hádegi | 13:00 - 16:00 |
* Þriggja daga námskeið frá kl. 8:00-12:00 eða 13:00-17:00 Verð kr. 7.200 kr.
Tekið er við skráningu alla virka daga frá klukkan 9:00 til 16:00 í síma 555-7200.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á ingibjorg@progolf.is
Þátttökugjald er 8.900 kr. Gengið skal frá greiðslu við skráningu.Veittur er 20% systkinaafsláttur (20% af gjaldi annars, þriðja og fleiri systkina) og/eða 20% afsláttur af framhaldsnámskeiði.
Tekið er við debet- og kreditkortum og hægt er að greiða í gegnum síma.
Skráning
Tekið er við skráningu alla virka daga kl. 9.00–16.00 í síma 555 7200 og á ingibjorg@progolf.is
Verð
8.900 kr. Ganga skal frá greiðslu við skráningu
Veittur er 20% systkinaafsláttur.
Veittur er 20% afsláttur af framhaldsnámskeiði.