Wu shu art - Kungfu fyrir 5-14 ára

WU SHU ART – KUNGFU FYRIR BÖRN
Kínverjar hafa löngum verið þekktir fyrir langlífi og heilbrigða lifnaðarhætti. Um árþúsundir hafa þeir þróað mjög fullkomnar aðferðir til að efla líkama og heilsu.

Í sumar verður boðið upp á skemmtileg námskeið fyrir börn á aldrinum 5–14 ára í Wu Shu Art sem er ævagömul kínversk bardagaíþrótt. Þetta eru skemmtileg sjálfsvarnarnámskeið þar sem farið verður í gegnum æfingar sem m.a. þjálfa einbeitingu, sjálfsaga og sjálfsöryggi. Kennari á námskeiðinu er meistari í Wu Shu Art. Sumarstarfið 2011 hefst 6. júní og stendur til 5. ágúst.

Námskeiðin eru haldin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 13.00–14.30 og eru fyrir börn á aldrinum 5–14 ára.

SKRÁNING OG VERÐ
Skráning hefst mánudaginn 16. maí og tekið er við skráningu alla daga kl. 9.00–18.00 í Heilsudrekanum eða í síma 553 8282.

Þátttökugjald er 11.900 kr. fyrir tvær vikur. 20% afsláttur ef keyptar eru fjórar vikur. Ganga skal frá greiðslu við skráningu. 20% systkinaafsláttur. Tekið er við greiðslukortum og hægt er að greiða í gegnum síma.

Skráning

Skráning hefst mánudaginn 16. maí og tekið er við skráningu alla daga kl. 9.00–18.00 í Heilsudrekanum eða í síma 553 8282.

Verð

11.900 kr. (2 vikur)
Veittur er 20% systkinaafsláttur.
Veittur er 20% afsláttur ef keyptar eru fjórar vikur.


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði