Sumarbúðir Ungmennahreyfingar RKÍ fyrir 12-16 ára

Mannréttindi og hjálparstarf

Sumarbúðir Ungmennahreyfingar Rauða krossins, Mannréttindi og hjálparstarf, verða haldnar í ágúst 2011 í Alviðru í Ölfusi. Búðirnar eru fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára 

, Mannréttindi og hjálparstarf, verða haldnar í ágúst 2011 í Alviðru í Ölfusi. Búðirnar eru fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára 

Þátttökugjald er 18.000 krónur.  

Unnið verður með málefni sem tengjast hjálparstarfi og mannréttindum með ýmsum verkefnum og hópavinnu. Einnig verður mikið lagt upp úr leikjum, útivist, kvöldvökum og annarri skemmtun.

Leiðbeinendur hafa allir sótt sérstakt leiðbeinendanámskeið Rauða krossins og skyndihjálparnámskeið. Auk leiðbeinenda koma nokkrir sérfræðingar að búðunum sem stjórna ákveðnum þáttum í dagskránni, svo sem sendifulltrúar Rauða krossins.

Tímasetningar: 

Sumarbúðir 1: 13.-16. ágúst
Sumarbúðir 2: 18.-21. ágúst

Skráning er á vef Rauða kross Íslands. Áhugasamir geta haft samband við Jón Brynjar Birgisson, verkefnisstjóra URKÍ á landsskrifstofu Rauða kross Íslands í síma 570 4000 eða á netfangið jon@redcross.is.

Skráning, dagskrá og nánari upplýsingar um sumarbúðirnar má nálgast hér.

Nánari upplýsingar

570 4000 www.redcross.is
jon@redcross.is

Skráning

Skráning fer fram á www.redcross.is frá 1. apríl

Verð

18.000 kr.


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 fædd 2001- 2004 ára á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára, fædd 1998 - 2000, smíðavelli fyrir 8 - 12 ára, fædd 1998-2002 og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára fædd 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:

Sjá öll námskeið í boði